Eru sáttir með styrkinn Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 16. september 2015 08:00 Bergur og Kristófer en á myndina vantar Guðmund. Vísir/GVA „
Þetta er ævintýramynd í orðsins fyllstu merkingu. Það er gaman að þetta séu ekki bara allt glæpamyndir og ofbeldi í sveitinni,“ segir Kristófer Dignus sem hlaut nýlega styrk úr kvikmyndasjóði ásamt handritshöfundunum Bergi Þór Ingólfssyni og Guðmundi Brynjólfssyni til þess að gera bíómynd úr barnasöngleiknum Horn á höfði, en þeir Bergur og Guðmundur skrifuðu handritið að söngleiknum. Söngleikurinn var frumsýndur árið 2009 og hlaut góðar viðtökur og sjálfur hefur Kristófer leikstýrt sjónvarpsþáttunum Fólkið í blokkinni. Hann segir myndina verða sannkallaða ævintýramynd í stíl Harry Potter en með íslensku ívafi enda er handritið byggt á íslenskum fornsögum. „Sagan fjallar um unga vini, Björn og Jórunni sem lenda í hremmingum þegar forn sáttmáli manns við náttúruna er rofinn og það fer í gang atburðarás sem stefnir landi og þjóð í hættu og þau eru eina fólkið sem er með lykilinn að þessari gátu,“ segir Kristófer um söguþráðinn. „Björn vaknar upp einn morguninn með horn á höfðinu og þau fara að reyna að átta sig á því hvernig hann losnar við þau og þau átta sig á því að þau þurfa að leysa úr þessum náttúrusáttmála,“ segir Kristófer en við það að sáttmálinn er rofinn vakna allskyns vættir úr dvala og valda talsverðum usla. Kristófer segir þá félaga að vonum sátta við styrkinn og nú fari önnur vinna á fullt skrið. „Handritið er komið á fullt, af því við fengum grænt ljós. Það eru margir sem sækja um og ekki margir sem fá þannig við erum mjög sáttir,“ segir hann. Eftir er að finna leikara til þess að fara með hlutverk í myndinni. „Mesta áskorunin er að finna krakkana, það vegur mest og þyngst. Þau verða í öllum senum í myndinni,“ segir Kristófer að lokum.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira