Skoðun

Vítavert gáleysi við merkingar matvæla

Guðrún Yrsa Richter skrifar
Við það að eignast barn takast foreldrar á við mörg og stór verkefni – og það miklvægasta er að vernda barnið. Fyrst um sinn snýr verkefnið að stórum hluta að tryggja að barnið nærist og þroskist í öruggu umhverfi. Þegar barnið fer að hreyfa sig meira þarf að huga að öllum hættum á heimilinu og í nærumhverfinu. Þegar fæðingarorlofi lýkur þarf að finna traustan aðila til að sjá um dagvistun barnsins og svo mætti lengi telja.

Við foreldrar barna með fæðuofnæmi þurfum enn fremur að treysta framleiðendum og innflytjendum að merkingar matvæla séu réttar svo við getum verndað börnin okkar fyrir ofnæmisvöldum. Rangar innihaldslýsingar geta verið lífshættulegar einstaklingum með fæðuofnæmi. Dæmin sýna að þessir aðilar bregðast reglulega trausti okkar. Nýlega var innkölluð vara sem inniheldur ofnæmisvald sem ekki var tilgreindur á umbúðum vörunnar.

Þetta er alvarlegt mál: Vörur eru innkallaðar af þessum sökum nánast mánaðarlega, en þessi innköllun sker sig úr að því leyti að sambærileg vara frá þessum tiltekna framleiðanda var einnig innkölluð í desember 2011. Telst mér til að 11 sinnum hafi vörur verið innkallaðar á síðasta ári og það sem af er þessu ári fjórum sinnum. Leyfi ég mér að fullyrða - enda þekki ég það af eigin raun - að rangar merkingar eru fleiri því í einhverjum tilvikum er haft beint samband við framleiðendur sem bæta úr merkingum sínum.

Fyrir foreldra sem hafa horft upp á barn sitt snöggveikjast af bráðaofnæmi og vera flutt með sjúkrabíl á bráðamóttöku með tilheyrandi adrenalín- og steragjöf virðist löggjöfin um innihaldslýsingar alltof veik. Það er ólíðandi að fyrirtæki innkalli vöru og setji hana síðan aftur á markað með röngum merkingum rúmum þremur árum síðar. Ég endurtek: sama varan með sömu röngu innihaldslýsingu. Gera þeir aðilar sem ákvarða viðlög við þess háttar brotum sér grein fyrir að í tengslum við hverja innköllun var að öllum líkindum líf í hættu?

Úrbóta er þörf strax.




Skoðun

Sjá meira


×