Skrifar enn á hverjum degi 97 ára Stefán Árni Pálsson skrifar 28. desember 2015 11:30 Jenna er enn hress. vísir/anton brink „
Jenna er framúrskarandi einstaklingur, afskaplega greind og hlý manneskja. Ein þeirra sem hefur mannbætandi áhrif á aðra,” segir sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sem gerði þátt um rithöfundinn Jennu Jensdóttur sem heitir einfaldlega Jenna og verður sýndur á Stöð 2 í kvöld. Jenna er orðin 97 ára en skrifar enn á hverjum einasta degi og það sem meira er, hún hefur handskrifað hvert einasta orð á löngum ferli. „Jenna er líklega þekktust fyrir að hafa skrifað Öddu bækurnar víðfrægu um munaðarleysingjann Öddu en bækurnar hafa samanlagt selst í yfir 60 þúsund eintökum frá því þær voru gefnar út fyrst, geri aðrir betur,” segir Sigrún Ósk. „Hún er líka tvíburi, en Ása tvíburasystir hennar lést í sumar. Um ári áður komust þær í sögubækurnar fyrir að vera langlífustu tvíburar Íslandssögunnar. Þær voru alla tíð nánar þrátt fyrir að hafa farið mjög ólíkar leiðir í lífinu.” Auk þess að senda frá sér tugi barnabóka kenndi Jenna börnum og unglingum í áratugi. Í þættinum verður rætt við vini Jennu úr ýmsum ólíkum áttum og má þar nefna Þorgrím Þráinsson, Katrínu Jakobsdóttur, Vigdísi Finnbogadóttur, Jón Gnarr og Styrmi Gunnarsson. Þátturinn hefst á Stöð 2 kl. 19.25 í kvöld og er í opinni dagskrá.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferðalag Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira