Lærisveinar Alfreðs unnu dramatískan sigur á Vezprem Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. desember 2015 14:55 Lærisveinar Alfreðs unnu gríðarlega mikilvægan sigur í dag. Vísir/getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar unnu dramatískan eins marka sigur á Aroni Pálmarssyni og félögum í Veszprem, 25-24 í 10. umferð Meistaradeildar Evrópu en sigurmark Kiel kom á lokasekúndum leiksins. Aron var að mæta í fyrsta sinn í mótsleik sínum gömlu félögum í Kiel en hann lék með þýska félaginu í sex ár undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Aron var ekki lengi að stimpla sig inn en hann skoraði með þrumufleyg á fyrstu mínútum leiksins, sláin-inn og klöppuðu stuðningsmenn Kiel fyrir honum. Leikmenn Veszprem voru með undirtökin í fyrri hálfleik og náðu þegar mest var fjögurra marka forskoti en leikmönnum Kiel tókst að minnka muninn í eitt mark undir lok fyrri hálfleiks í stöðunni 11-12. Ungverska liðið var yfirleitt skrefi á undan í seinni hálfleik en leikmenn Kiel voru aldrei langt undan og náðu að jafna metin skömmu fyrir lok leiksins. Það var hinsvegar Kiel sem stal sigrinum undir lok leiksins þegar Dominik Klein kom inn úr horninu og skoraði sigurmark leiksins þegar sjö sekúndur voru eftir en hann er nýkominn af stað eftir erfið meiðsli. Var þetta í fyrsta sinn sem Kiel náði forskotinu í seinni hálfleik og í fyrsta sinn frá upphafsmínútum leiksins. Kiel er í 4. sæti A-riðilsins með 11 stig að 10 leikjum loknum en Vezprem er í 1. sæti með 15 stig.
Handbolti Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Fleiri fréttir Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Sjá meira