Varð svo heltekin af því að borða hollan mat að hún þróaði með sér átröskun Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. desember 2015 21:30 Jordan Younger
Jordan Younger er vel þekktur heilsu-og lífstílsbloggari en hún heldur úti síðunni Blonde Vegan sem nú hefur reyndar yfirskriftina The Balanced Blonde. Ástæðan fyrir nafnabreytingunni er sú staðreynd að Younger þróaði með sér nokkurs konar átröskun þar sem hún varð heltekin af því að borða hreinan og hollan mat. Átröskunin er kölluð orthorexia nervosa, en heitið var fyrst notað af Dr Steven Bratman árið 1997. Er átröskuninni lýst sem sjúkdómi sem dulbúinn er sem dyggð enda líta flestir svo á að það sé gott að borða hollan mat.Markmiðið ekki að grennast Í læknisfræði hefur orthorexía ekki verið formlega skilgreind sem sjúkdómur en hún er frábrugðin þekktum átröskunarsjúkdómum á borð við búlimíu og anorexíu þar sem markmið þeirra sem þjást af orthorexíu er ekki að grennast. Breska dagblaðið Independent birti viðtal við Younger á vef sínum um helgina þar sem hún lýsir því hvernig þráhyggjan tók yfir líf hennar og mataræði hennar fór að orsaka líkamlega kvilla, þar sem Younger hætti til að mynda að hafa blæðingar. Þá fékk hún kvíðaköst ef hún þurfti að borða án þess að hafa skipulagt máltíðina fyrirfram en mataræði hennar var afar strangt, ef svo má að orði komast.Var hrædd við ákveðnar tegundir af mat „Ég hafði þróað með mér hræðslu við ákveðnar tegundir af mat því ég hafði ekki borðað sumt svo ótrúlega lengi, eins og til dæmis egg,“ segir Younger en hún borðaði til að mynda engar fæðutegundir úr dýraríkinu og ekkert sem innihélt olíu, sykur eða glútein. Younger segist hafa áttað sig á því að ekki var allt með felldu þar sem henni leið sífellt verr vegna mataræðisins. Hún fór því til sálfræðings og hefur verið að byrjað að egg, fisk og kjúkling á ný. Younger segir að það hafi ekki verið auðvelt að fara aftur í að borða þessar afurði og ekki hafi allir þeir sem lásu bloggið hennar daglega og fylgdu henni á samfélagsmiðlum verið sáttir. Umfjöllun Independent um orthorexíu má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Fleiri fréttir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Sjá meira