Auðunn Blöndal fellir grímuna: Ímyndaði sér að vinir sínir baktöluðu sig Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. nóvember 2015 17:15
Stuttmyndin Fellum Grímuna verður sýnd í opinni dagskrá á Stöð 2 annað kvöld, mánudagskvöldið 23. nóvember. Í stuttmyndinni stíga þjóðþekktir einstaklingar fram og lýsa baráttu sinni við meðal annars kvíða, meðvirkni og fullkomnunaráráttu. Þeirra á meðal er fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal sem ræðir um hvernig hann hefur alltaf haft miklar áhyggjur af því hvað öðrum finnst um hann. Í broti úr myndinni, sem sjá má hér að ofan, segir Auðunn að það hafi til að mynda birst í vænisýki á hans yngri árum. „Þegar ég var ungur var ég að ímynda mér að vinir mínur væru að tala illa um mig þó þeir væru ekki einu sinni að því,“ segir Auðunn og bætir við að þessi nagandi ótti hafa alltaf fylgt honum, ekki síst eftir að hann byrjaði að starfa við fjölmiðla. „Það er erfitt að ætla að þóknast öllum og hafa gríðarlegar áhyggjur af því hvað aðrir séu að segja um sig. Það getur gert mig hálfgeðveikan,“ segir Auðunn.Uppfærði síður til að sjá niðrandi ummæli um sig Hann hafi þannig „googlað“ nafnið sitt og lesið um sig fjölmargar sögur þar sem hann er sagður góður með sig og kallaður öllum illum nöfnum. Athugasemdakerfi fjölmiðlanna hafi svo gert illt verra. „Það kemur kannski einhver frétt um það að maður hafi verið að kaupa sér nýja úlpu og svo koma 50 svör sem eru bara: „Hverjum er ekki drullusama?“ og eitthvað. Ég hef meira að segja lent í því að vera að „öppdeita“ síðuna, til dæmis DV.is, til að tékka á svona hálftíma fresti hvort það sé komið eitthvað neikvætt,“ segir Auðunn. „Þannig að þetta er einhvern veginn eitthvað sem hefur alltaf loðað við mig að hafa einhverjar gríðarlegar áhyggjur af því hvað öðrum finnst um mig sem er ömurlegt.“Haugar í Breiðholti skipta minna máliHann segir að honum hafi þó tekist að yfirstíga þennan ótta sinn, ekki síst fyrir tilstilli sinna nánustu. „Meðan fjölskyldan þín og vinir vita hver þú ert þá skiptir engu máli hvað einhver haugur á skítableyju upp í Breiðholti er að segja um þig á netinu þannig að hann má bara eiga það við sig, ég er hættur að lesa það,“ segir Auðunn. „Treystu fjölskyldunni þinni og vinum og vertu ekkert að spá hvað öðrum finnst. Farðu eftir þínum nánasta hring. Ef þú ætlar þér eitthvað þá get ég lofað því að þú kemst ansi langt ef þú gefur þig allan í það,“ bætir hann við og tekur dæmi úr sínum eigin fjölmiðlaferli.Þættirnir 70 mínútur nutu gríðarlegra vinsælda á fyrsta áratug aldarinnar.„Ég þekkti engan í 70 mínútum; ég þekkti ekki Simma, ekki Sveppa og ekki Jóa. Mig langaði rosalega að vera í 70 mínútum og ég var bara nýkominn frá Sauðárkróki en bara af því að ég gafst ekki upp – ég var búinn að sækja um sex sinnum áður en ég fékk vinnu loksins við að fara í falda myndavél og fíflast í fólki. Það var bara í fyrsta sinn á ævi minni sem ég lagði mig allan fram í eitthvað. Ég var hálf latur í skóla og alltaf verið svona nettur haugur en eftir að ég náði þarna inn er ég búinn að vera duglegur síðan, síðustu 13 ár, því ég tými ekki að sleppa þessu. Bara ef þú vilt eitthvað og þig langar eitthvað gefðu þig þá allan í það og ég skal lofa þér að þú ferð ansi langt.“ Fjölmargir halda uppi falskri ímynd Fellum Grímuna er forvarnarverkefni sem miðar að því að varpa ljósi á þá staðreynd að öll erum við skemmtilega mannleg og enginn er fullkominn. Hins vegar reynir fólk oft að halda uppi falskri ímynd en allt slíkt getur orðið áberandi í litlu þjóðfélagi eins og við búum í á Íslandi. Þjóðþekktir einstaklingar, þar á meðal Ólafur Stefánsson, Anníe Mist, Gunnar Nelson, Páll Óskar, Ari Eldjárn, Þórunn Antonía, Yesmine Olsson og Edda Björgvinsdóttir stíga fram í myndinni og tala um það sem þeir glíma við, svo sem kvíða, meðvirkni og fullkomnunaráráttu. Fellum Grímuna var frumsýnd 11. nóvember í Bíó Paradís og verður sýnd í opinni dagskrá á Stöð 2 annað kvöld, mánudagskvöldið 23. nóvember. Baldvin Z leikstýrði myndinni í samvinnu við Jóhönnu og Sigurbjörgu en þær framleiddu myndina einnig. Baldvin hefur getið sér gott orð fyrir myndirnar Vonarstræti og Órói. Í myndinni eru þrír gamansketsar sem gera góðlátlegt grín að íslensku samfélagi og gefa henni skemmtilegt yfirbragð þrátt fyrir alvarlegan undirtón og mikilvægan boðskap. Handrit og leikstjórn þeirra var í höndum Arnórs Pálma, sem leikstýrði þáttunum Hæ Gosa. Tónlistin í Fellum grímuna er eftir Agga Friðbertsson og Sigrúnu Stellu Bessason. Að auki er Árelía Eydís Guðmundsdóttir prófessor með mikilvægt innlegg í myndinni um íslenskt samfélag.
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira