„Bílbeltið bjargaði mér gjörsamlega“ Jóhann Óli EIðsson skrifar 29. nóvember 2015 13:00 Bílbeltin skyldu eftir sig mar víða á líkama Svövu. myndir/svava maría „
Bílbeltið bjargaði mér gjörsamlega,“ segir Svava María Hálfdánardóttir í samtali við Vísi en hún lenti í bílslysi síðastliðinn fimmtudag á leið heim úr vinnu. Svava starfar á leikskóla. Slysið átti sér stað í Breiðholti í mikilli hálku en bifreiðin er ónýt eftir atvikið. Svava María Hálfdánardóttir Svava segir að ástandið á henni sé ekki gott en gæti verið svo miklu, miklu verra. Hún sé verkjuð, marin og illa tognuð í baki. Hluta marsins má sjá á myndum þeim er fylgja fréttinni. „Ég vakna oft á nóttunni út af verkjum og ég þarf að styðja mig við hækju. Ég er bara að vinna í að jafna mig núna en ég hef ekki hugmynd um hvernig framhaldið verður,“ segir Svava. Hún vill þakka þeim sem komu að henni og aðstoðuðu hana eftir slysið. Sjúkraflutningamennirnir, sem fluttu hana á slysadeild, hafi verið snöggir á staðinn. Þá vill hún einnig koma sérstökum þökkum áleiðis til kvennanna tveggja sem komu fyrstar að slysstaðnum og mannsins sem færði henni úlpuna sína til að ylja henni. „Það er ekkert sjálfsagt að einhver stoppi og hugi að þér. Margir aka framhjá bílum sem eru stopp sama hvað,“ bætir hún við. Svava vonar að óhappið hennar geti verið öðrum áminning um mikilvægi bílbelta í umferðinni. „Ég er alltaf með bílbelti þegar ég er í bíl. Maður hefur heyrt svo hræðilegar sögur af slysum sem hefðu getað farið betur hefði fólk verið í belti. Ég er að vísu talsvert marin en það skiptir engu þegar maður er heill á húfi,“ segir Svava.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Sjá meira