Vignir færir sig um set í Danmörku Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. september 2015 09:32 Vignir færir sig um set í Danmörku eftir tímabilið. vísir/eva björk
Landsliðsmaðurinn Vignir Svavarsson hefur gert tveggja ára samning við danska handboltaliðið Team Tvis Holstebro. Vignir, sem er 35 ára, leikur nú með Midtjylland en hann færir sig um set til Team Tvis að tímabilinu loknu. Tveir Íslendingar leika með Team Tvis, þeir Sigurbergur Sveinsson og Egill Magnússon. Liðið er í 5. sæti dönsku deildarinnar með sex stig eftir fimm leiki. Midtjylland er einnig með sex stig en eftir sex leiki. „Við erum að fá reynslumikinn leikmann sem þekkir danska handboltann,“ sagði Patrick Westerholm, þjálfari Team Tvis, um Vigni. „Hann hefur verið einn af bestu leikmönnum deildarinnar í sinni stöðu á undanförnum árum og er sterkur á báðum endum vallarins. Við erum ekki með svona leikmann í okkar röðum og ég er virkilega ánægður að hann ákvað að koma til okkar.“ Líkt og Westerholm segir þekkir Vignir vel til í dönsku deildinni en hann lék með Skjern á árunum 2005-08 en þaðan kom hann frá uppeldisfélaginu Haukum. Á árunum 2008-14 lék Vignir með þremur liðum í Þýskalandi; Lemgo, Hannover-Burgdorf og Minden, áður en hann fór til Midtjylland sumarið 2014. Vignir vann EHF-bikarinn með Lemgo 2010. Vignir hefur leikið 224 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 249 mörk.
Handbolti Mest lesið Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Fótbolti Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Körfubolti Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fótbolti Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fótbolti O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Fótbolti Fleiri fréttir Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Andri kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Hauk Arnór Snær snýr aftur heim Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ ÍR áfram eftir sigur í Mosfellsbæ Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Tilkynnti um óléttu og nýjan samning á sama tíma Patrekur hættur eftir dapurt gengi Stjörnunnar Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Janus Daði myndaður í heimsókn hjá Barcelona Epicbet sýni handboltann í leyfisleysi: „Enda ólöglegar síður“ Teitur inn í landsliðið Gísli bjó til meira en þriðjung markanna Haukur magnaður í sigri Löwen Blær skoraði þrjú og lagði upp jöfnunarmarkið KA/Þór sótti sigur gegn Fram og stigalausar Stjörnukonur Fram kjöldró HK og spenna í Eyjum Meistararnir unnu gegn ÍBV og ÍR hafði betur gegn Selfyssingum Donni og félagar björguðu stigi undir lokin Afturelding komst upp að hlið Hauka Sjá meira