Erlent

Fjölskylda norska gíslsins segist ekki hafa efni á að greiða lausnargjaldið

Atli Ísleifsson skrifar
Hinn 48 ára Ole Johan Grimsgaard-Ofstad.
Hinn 48 ára Ole Johan Grimsgaard-Ofstad.
Fjölskylda Norðmannsins Ole Johan Grimsgaard-Ofstad, sem er í haldi ISIS-liða í Sýrlandi, segir að hún geti ekki sjálf safnað saman þeirri peningaupphæð sem ISIS-liðar krefjast til að sleppa honum lausum.

Norska ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að ekki verði samið við hryðjuverkamenn.

„Við getum einungis beðið gíslatökumennina að sleppa syni okkar og bróður,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldunni.

Rænt af ISIS-liðum í janúar

Hinn 48 ára Grimsgaard-Ofstad var tekinn til fanga í Sýrlandi í lok janúarmánaðar. Í síðustu Facebook-færslu Norðmannsins frá 24. janúar, kom fram að hann væri í borginni Idlib í norðvesturhluta Sýrlands á leið suður til Hama.

Liðsmenn ISIS fullyrtu í gær að þeir væru með Grimsgaard-Ofstad og Fan Jinghui, fimmtugan kínverskan ríkisborgara, í haldi. Að sögn Verdens Gang krefjast gíslatökumennirnir lausnargjalds upp á fleiri tugi milljóna norskra króna.

„Syni okkar og bróður mínum hefur verið haldið í gíslingu í Sýrlandi frá því í janúar. Á þessum erfiða tíma höfum við bæði vonast eftir lausn og óttast hið versta. Við vonust til að uppbyggjandi starf norskra yfirvalda muni skila sér í að honum verði sleppt,“ segir í yfirlýsingu fjölskyldunnar sem birt var á heimasíðu norska utanríkisráðuneytisins.

Til sölu

Í nýjasta hefti áróðurstímaritsins Dabiq er birt mynd af gíslunum tveimur með skilaboðunum „til sölu“. Með myndinni af Grimsgaard-Ofstad fylgist texti sem segir að „ríkisstjórn hans hafi yfirgefið hann og hafi ekki gert alls sem í þeirra vandi stendur til að sleppa honum lausum“.

Þá eru birtar upplýsingar um hvernig megi borga lausnargjaldið, auk þess að fram kemur að „tilboðið sé tímabundið“.

Semja ekki við hryðjuverkamenn

Að sögn Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, segir að gíslatökumennirnir hafi sett fjölmörg skilyrði og farið fram á háa lausnarsummu.

„Þetta er mál sem ríkisstjórnin tekur mjög alvarlega. Við getum ekki og viljum ekki láta undan þrýstingi frá hryðjuverkamönnum og glæpamönnum. Noregur greiðir ekki lausnargjöld,“ segir Solberg, sem bætir við að hætta sé á að fleiri Norðmönnum verði rænt, verði lausnargjaldið greitt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×