Innlent

Gæsluvarðhald staðfest yfir einhverfum manni vegna auðgunarbrota og vörslu á barnaklámi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms.
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir erlendum karlmanni sem sakaður um að hafa hafa greitt fyrir flugmiða hingað til lands og fjöldann allan af vörum með illa fengnu kreditkortanúmeri,  sem og fyrir vörslu og dreifingu á barnaklámi.

Vísir fjallaði um úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í upphafi mánaðar þegar maðurinn var dæmdur í einangrun en mál hans er rakið í úrskurðinum. 

Hann mun sæta gæsluvarðhaldi til fimmtudagsins 8. október. Hann var settur í farbann í sumar eftir að hann losnaði úr gæsluvarðhaldi 27. júlí. Síðan þá hefur lögregla rannsakað um þrjá tugi ætlaðra brota hans. Hæstiréttur taldi það sýnt að maðurinn myndi halda áfram að brjóta af sér á meðan máli hans er ekki lokið.

Talið að maðurinn hafi umráð yfir 8000 skrám sem innihalda barnaklám

Fyrir dóminum lá skýrsla erlends geðlæknis þar sem fram kemur að maðurinn sé með Asberger-heilkenni, athyglisbrest og ofvirkni. Í úrskurði héraðsdóms segir að skýrslan bendi ekki til ósakhæfis mannsins.

Við meðferð málsins hjá lögreglu fór fram rannsókn á þeim tölvubúnaði sem maðurinn hafði meðferðis og fundust þar fjöldi flugbókana á vegum kærða og greiðslukortanúmer sem tilheyrðu öðrum aðilum.

Þá fannst einnig umtalsvert magn skráa sem geyma myndir og myndbönd af börnum, mestmegnis ungum drengjum, í kynferðislegum athöfnum.

Lögreglan telur manninn því undir „rökstuddum grun” um að hafa haft í vörslum sínum og til dreifingar þúsundir myndbanda og mynda sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt í skrám á hörðum diskum og tölvuskýjum (Dropbox). Lögreglan hefur farið yfir 6 aðganga mannsins af þeim 27 sem talið er að hann hafi umráð yfir og hafa um 8000 skrár sem innihalda barnaklám komið í ljós fram til þessa.

Úrskurð Hæstaréttar má lesa í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×