Rakel Garðarsdóttir framúrskarandi ungur Íslendingur Samúel Karl Ólason skrifar 17. september 2015 20:06 Rakel ásamt hinum sem voru tilnefnd. Mynd/JCI
Rakel Garðarsdóttir var í dag valinn framúrskarandi ungur Íslendingur ársins. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti Rakel verðlaunin við hátíðlega athöfn við í Háskólanum í Reykjavík. Rakel stofnaði samtökin Vakandi í ársbyrjun í fyrra, en samtökin berjast gegn sóun á matvælum. Samkvæmt tilkynningu frá JCI á Íslandi, sem veitir verðlaunin, hefur orðið mikil vitundarvakning og viðhorfsbreyting í samfélaginu varðandi sóun á mat. Rakel hefur gefið út bók í nafni Vakandi og safnar hún nú fyrir heimilldarmynd um sóun á mat og tískufatnaði. „Rakel hefur unnið allt sitt starf með Vakandi í sjálfboðavinnu og nýtt frítíma sinn í að berjast gegn sóun. Hún hefur reynt að bæta umhverfi sitt, heiminn allan og segir: „Lítil skref byrja alltaf hjá okkur sjálfum“.“ Hvatningarverðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi og hafa verið veitt samfleytt frá árinu 2002. Árlega er kallað eftir tilnefningum sem dómnefnd tekur við og velur topp 10 hóp og sigurvegara. Í dómnefnd í ár voru: Ari Kristinn Jónsson rektor HR, Katrín Jakobsdóttir, formaður vinstri grænna og alþingiskona, Kjartan Hansson landsforseti JCI og Vilborg Arna Gissurardóttir ævintýrakona og pólfari. Forseti Íslands, verndari verkefnsins, afhendir verðlaunin auk þess að afhenda öllum í topp 10 hópnum viðurkenningu. Eva Brá Önnudóttir, baráttukona í málefnum námsmanna, Georg Lúðvíksson, stofnandi Meniga, Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumaður, Helgi Sveinsson, heimsmeistari í spjótkasti, Katrín Tanja Davíðsdóttir, heimsmeistari í crossfit, Kristín Sveinsdóttir, óperusöngkona, Kristjana Ásbjörnsdóttir, doktor í faraldsfræðum, Snædís Rán Hjartardóttir, baráttukona um mannréttindi, og Ævar Þór Benediktsson, leikari og vísindamaður.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira