Körfubolti

Jakob: Aldrei verið í þessu hlutverki að koma inn á áður

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson hefur aldrei kynnst hlutverki varamannsins áður.
Jakob Örn Sigurðarson hefur aldrei kynnst hlutverki varamannsins áður. vísir/valli
Ísland mætir Serbíu í þriðja leik liðsins á EM 2015 í körfubolta klukkan 12.30 í dag. Spilamennska strákanna okkar hefur verið frábær til þessa en það dugði ekki til sigurs gegn Þýskalandi né Ítalíu.

„Við erum með sjálfstraust. Við vissum ekki alveg við hverju við áttum að búast, en ég held að við séum búnir að sýna það, að við erum mjög góðir í körfubolta og getum alveg staðið í þessum liðum,“ segir Jakob Örn Sigurðarson, leikmaður Íslands, við Vísi.

Ísland tapaði naumlega gegn Þýskalandi í fyrsta leik og var svo í fínni stöðu til að leggja Ítalíu á sunnudaginn þegar lítið var eftir af leiknum.

„Mér finnst að við eigum að vera með einn sigurleik. Við áttum að vinna Ítalíu. Við erum bara með sjálfstraustið í botni og hlökkum til að spila við Serbíu,“ segir Jakob sem finnst gaman að spila á móti þessum stórþjóðum.

„Þetta verður ekkert létt núna; Serbía fyrst, svo Spánn og svo Tyrkland. Það er líka rosalega gaman að fá þessa leiki, prófa sig áfram og sjá virkilega hvað maður getur.“

Strákarnir í jóga í gær.vísir/valli
Gott að fara í jóga

Viðhorf íslenska liðsins hefur vakið athygli á mótinu, en þrátt fyrir að vera nýliðar og lang minnsta liðið hefur það gefið bæði Þýskalandi og Ítalíu alvöru leiki. Strákarnir okkar mæta af miklum krafti til leiks.

Við verðum að mæta þannig til leiks, annars verðum við bara jarðaðir. Við verðum að vera svolítið kohraustir og gá hvað við komumst langt gegn þessum þjóðum. Ef sjálfstraustið er ekki á fullu komumst við ekkert að því hvað við getum,“ segir Jakob Örn.

Jakob hefur um langa hríð verið einn albesti körfuboltamaður landsins, en á þessu móti sinnir hann hlutverki varamanns og kemur sterkur inn af bekknum. Það hefur hann gert frábærlega; verið öflugur í vörn og nýtt tækifærin sín í sókn vel.

„Þetta er bara fínt. Ég hef aldrei verið í þessu hlutverki áður, hvorki með félagsliðum né landsliðinu. Mér líður samt ágætlega í þessu hlutverki. Mér finnst ég vera skila því nokkuð vel. Ég hef sinnt minni vinnu í vörninni og staðið mig vel í sókninni,“ segir Jakob Örn.

„Maður verður að vera tilbúinn. Þeir sem hafa komið inn af bekknum hafa allir verið tilbúnir og komið inn með ákveðinn kraft. Leikurinn okkar dettur ekki niður finnst mér þegar menn eru að skipta. Við höldum ákveðinni ákefð og baráttu allan tímann.“

Brugðið var út af vananum á æfingu íslenska liðsins í gær en þar var liðið sett í jóga. Það var hluti af frídeginum í gær þar sem menn máttu líka fara af hótelinu.

„Jógað var gott. Það var líka gott að fá smá tíma fyrir sjálfan sig í dag og geta hugsað um eitthvað annað. En nú einbeitir maður sér aftur að næsta leik,“ segir Jakob Örn Sigurðarson.


Tengdar fréttir

Logi: Vöðum bara óhræddir í Serbana

Logi Gunnarsson og félagar í íslenska körfuboltalandsliðinu hafa staðið sig vel í tveimur fyrstu leikjum sínum á Evrópumótinu í körfubolta.

Helgi Már: Við ætlum að vinna leiki hérna

Íslenska körfuboltalandsliðið hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á Evrópumótinu í körfubolta en í bæði skiptin voru þetta naum töp á móti stórþjóðunum Þýskalandi og Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×