Körfubolti

Kallaður prófessorinn og á leið í NBA en fyrst er það Ísland á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nemanja Bjelica skorar hér á móti Þjóðverjum og Dirk Nowitzki getur ekkert annað en horft á.
Nemanja Bjelica skorar hér á móti Þjóðverjum og Dirk Nowitzki getur ekkert annað en horft á. Vísir/Getty
Nemanja Bjelica er orðinn stærsta stjarna serbneska landsliðsins í körfubolta en þessi frábæri leikmaður hefur farið á kostum í fyrstu leikjum liðsins á Evrópumótinu í Berlín.

Bjelica var með 24 stig. 10 fráköst og 4 stoðsendingar í sigrinum á Spáni og skoraði síðan sigurkörfuna og margar mikilvægar körfur í lokin í sigrinum á Þjóðverjum.

„Þú getur svo ekki tekið eitthvað eitt frá honum," segir Finnur Freyr Stefánsson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins.

Búinn að vera rísandi stjarnan í Evrópu

„Þetta er frábær leikmaður sem kemur úr hörku körfuboltaskóla, spilaði hjá Svetislav Pesic hjá Rauðu Stjörnunni og er búinn að vera undanfarin ár með Fenerbahce Ülker hjá Obradović. Hann er búinn að vera rísandi stjarna og toppaði sig í vetur með því að vera valinn bestileikmaðurinn í Euroleague," segir Finnur.

Bjelica er 27 ára gamall og 209 sentímetrar á hæð. Hann getur búið til sitt eigið þriggja stiga skot og er með magnaðar hreyfingar þegar hann keyrir upp að körfunni. Þá spilar hann mjög flott vörn.

„Hann er búinn að vera frábær á þessu móti hérna. Hæfileikar hans sem leikmanns upp á 210 sentímetra eru miklir enda er hann maður með þessa boltatækni og þessa skottækni. Maður sér að þetta er leikmaður með NBA merkið skrifað á sig," segir Finnur.

Valinn í nýliðavali NBA árið 2010

Nemanja Bjelica var valinn af Washington Wizards í nýliðavali NBA-deildarinnar árið 2010 en honum var síðan skipt strax til Minnesota Timberwolves. Það er síðan ekki fyrr en í sumar að hann ákvað að fara til Bandaríkjanna. Bjelica samdi við Minnesota í júlí.

„Það verður mjög forvitnilegt að sjá hvernig hann verður hjá Minnesota Timberwolves. Þetta er strákur sem er ekki að fara setja upp einhverjar risatölur í NBA en það eru fáir veikleikar í hans leik," segir Finnur.

„Þessi hæfileiki hans að geta sótt að körfunni og skotið með þessa stærð er rosalega sjaldgæfur í bland við þennan hraða sem hann hefur," segir Finnur.

Íslenska liðið getur þó ekki lag ofurkapp á að stoppa hann. „Serbía spilar svo skipulagðan bolta og þeir eru svo klárir að ef við förum að setja áherslu á einhvern einn leikmann þá galopnast bara fyrir einhvern annan," segir Finnur.

Af hverju prófessorinn?

Nemanja Bjelica er kallaður prófessorinn innan körfuboltans en af hverju?

„Ég reikna með það að það sé vegna hans körfuboltahæfileika og körfuboltakunnáttu. Hann toppaði sig í gær með því að setja sigurkörfuna á móti heimamönnum eftir að Serbar áttu að mínu mati frekar slakan leik á móti Þjóðverjum. Ég býst við þeim ennþá sterkari í leiknum á móti okkur," sagði Finnur að lokum.

Íslenska landsliðið mætir Serbíu á morgun klukkan 14.30 að staðartíma eða klukkan 12.30 að íslenskum tíma.


Tengdar fréttir

Logi: Vöðum bara óhræddir í Serbana

Logi Gunnarsson og félagar í íslenska körfuboltalandsliðinu hafa staðið sig vel í tveimur fyrstu leikjum sínum á Evrópumótinu í körfubolta.

Helgi Már: Við ætlum að vinna leiki hérna

Íslenska körfuboltalandsliðið hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á Evrópumótinu í körfubolta en í bæði skiptin voru þetta naum töp á móti stórþjóðunum Þýskalandi og Ítalíu.

Fór í ísbað eftir leikinn

Jón Arnór Stefánsson er í risastóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu á Evrópumótinu og það er mikið álag á besta leikmanni liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×