Arnór: Barðist við Chelsea um að selja Eið Smára til Man. Utd Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. júlí 2015 14:00
Arnór Guðjónsson, einn besti knattspyrnmaður Íslands frá upphafi, var í kempuviðtali í Akraborginni í gær þar sem hann fór yfir ferilinn frá fyrsta sparki á Húsavík til þess síðasta hjá Stjörnunni. Arnór afrekaði margt á sínum ferli og var kjörinn næst besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar á lokahófi sjónvarpsþáttanna Tíu Bestu þar sem fjallað var um þá tíu bestu. Sonur hans, Eiður Smári Guðjohnsen, var í þriðja sæti í þeirri kosningu sem fram fór árið 2008. Arnór ræddi um soninn í viðtalinu sem hann er augljóslega mjög stoltur af. „Hvernig hann hefur tekið á hlutum og inn á vellinum er algjör snilld. Það var virkilega sterkt hjá honum að koma til baka 18-19 ára gamall eftir fótbrotið. Hvernig hans ferill tókst á flug í Bretlandi er með ólíkindum,“ sagði Arnór. „Hann er náttúrlega búinn að vinna marga titla. Það var mikil barátta á sínum tíma þegar það var ljóst að hann færi frá Chelsea. Hann gat valið á milli stórra félaga. Ég gæti nú talað um það í klukkutíma.“United vildi fá Eið Eitt af félögunum sem sóttust eftir því að fá Eið Smára þegar hann yfirgaf Chelsea var Manchester United, en Sir Alex Ferguson var hrifinn af honum. „Manchester United sterkt inn í myndinni, en síðan var það alveg ljóst að Chelsea ætlaði ekki að selja hann til Manchester. Ég átti í smá baráttu við framkvæmdastjóra Chelsea um það. En síðan kemur Barcelona inn í myndina og eftir það var ekki aftur snúið,“ sagði Arnór. „Mér fannst hann standa sig vel hjá Barcelona því hann kemur inn í þær aðstæður að þjálfarinn segir við Eið að hann þurfi að vera þolinmóður. Hann var að koma inn í meistaralið og þjálfarinn segist ætla láta leikmennina sem fyrir eru spila.“ „Eiður kemur inn á í fyrsta leik og skorar sigurmarkið. Ég held að þegar það var komið fram yfir áramót var Eiður búinn að skora 12-13 mörk og tímabilið bara hálfnað.“Virtur af Xavi og Puyol „Ég veit að hann var mjög virtur af leikmönnunum sem spilaði með honum eins og Xavi og Puyol. Þegar Guardiola tekur við er á döfinni að Eiður verði seldur en Guardiola vildi halda honum. Síðan kemur í ljós að þetta er frábært lið og mikil samkeppni og barátta og liðið vinnur hvern leikinn á fætur öðrum,“ sagði Arnór. Aðspurður um muninn á feðgunum sem knattspyrnumönnum sagði Arnór hlægjandi: „Eini munurinn er sá að ég var miklu betri. Nei, nei. Fyrir mér er hann besti knattspyrnumaður sem við höfum átt,“ sagði Arnór Guðjohnsen. Allt viðtalið má heyra í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið „Þá leið mér frekar illa eftir leik“ Fótbolti Fyrrum leikmaður Liverpool að ganga í raðir Stjörnunnar Íslenski boltinn Kaupa Delap og eru í viðræðum við Sancho Enski boltinn Sér á eftir Earps en vill ekki ræða hvað fór þeirra á milli Fótbolti Þeir bestu (1. sæti): Afrekaði allt Íslenski boltinn „Eitthvað sem er í vinnslu og gerist kannski“ Fótbolti Eitt Íslandsmet og þrjú gullverðlaun Sport Dagskráin í dag: Formúla 1 og golf Sport Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn Fulltrúi Íslands í áfalli eftir aðalfund sem fór í háaloft: „Eins og eldur í púðurtunnu“ Sport Fleiri fréttir Kaupa Delap og eru í viðræðum við Sancho Enginn labbaði meira en verðandi leikmaður Man United Arsenal að sækja miðjumann þó það sárvanti framherja Henry segir að Arsenal hafi ekki staðið undir væntingum United niðurlægt í Malasíu Leita til Liverpool að nýjum kollega Hákonar Stuðningsmenn Chelsea köstuðu glösum og stólum í Póllandi „Án Meistaradeildarinnar þurfum við ekki stóran leikmannahóp“ Forstjóri Liverpool þakkar stuðningsmönnum sem hjálpuðu hver öðrum Niðurbrotinn Klopp í sjokki Man City vilja Reijnders áður en HM félagsliða hefst Settu met í töpum en spila í Meistaradeild Evrópu Wirtz vill bara Liverpool og metupphæð komin á borðið Bein útsending: Englandsmeistaratitlinum fagnað í Liverpool Allt klárt fyrir fyrstu kaup Man. Utd í sumar Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu Garnacho ekki í hóp Ætlar að biðja stuðningsmennina afsökunar eftir lokaleikinn Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Salah bestur og Gravenberch besti ungi Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Klopp snýr aftur á Anfield Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Var ekki nógu ánægður með Trent Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn