Íslenski boltinn

Gullöld framundan í Grafarvoginum?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Guðjónsson er kominn með fimm mörk í Pepsi-deildinni í sumar.
Þórir Guðjónsson er kominn með fimm mörk í Pepsi-deildinni í sumar. vísir/vilhelm
Fjölnir hefur aldrei endað ofar en í sjötta sæti í efstu deild og aldrei verið meðal þeirra bestu lengur en í tvö ár í senn. Nú lítur út fyrir að þetta kornunga félag sé loksins búið að slíta barnsskónum og tilbúið að festa sig í sessi í Pepsi-deildinni.

Fjölnismenn hafa komið flestum á óvart með frábærri byrjun sinni í Pepsi-deildinni og eftir þriðja sigur sinn í röð í fyrrakvöld er liðið í þriðja sæti deildarinnar og þegar búið að vinna jafnmarga leiki og allt síðasta tímabil.

Annað tímabilið hefur oft reynst liðum erfitt og það eru mörg dæmi um það. Víkingsliðið í sumar er til dæmis áttunda liðið á öðru ári í tólf liða deild sem nær ekki að vinna tvo eða fleiri leiki í fyrstu átta umferðunum. Inn á milli tekst þó liðum að byggja ofan á nýliðatímabilið og festa sig í deildinni. Byrjun Grafarvogspilta ætti að vera upphafið að einhverju meira ef marka má súper-byrjanir liða á sínu öðru ári.

Enginn gert betur en Fram

Framarar komu aftur upp í efstu deild sumarið 1984 og náðu þá fjórða sæti sem nýliðar. Liðið byrjaði síðan sumarið 1985 frábærlega þar sem það náði í 22 stig í fyrstu átta leikjunum og var með átta stiga forskot á toppnum þegar tímabilið var nærri því hálfnað.

Framarar gáfu eftir í seinni umferðinni en urðu bikarmeistarar. Þeir áttu síðan eftir að vinna stóran titil næstu fimm árin þar af urðu þeir þrisvar sinnum Íslandsmeistarar; 1986, 1988 og 1990.

Grafarvogsbúar hafa fjölmennt á völlinn í sumar.vísir/vilhelm
Sögulegt hjá Skagamönnum

Skagamenn skrifuðu söguna með því að verða Íslandsmeistarar sem nýliðar sumarið 1992 og sigurganga þeirra hélt áfram. Þeir fengu 21 stig í fyrstu átta leikjum sínum sumarið 1993 og enduðu það síðan sem tvöfaldir meistarar. Skagamenn urðu síðan Íslandsmeistarar í þrjú ár til viðbótar.

Það er enginn að fara að ætlast til þess að Fjölnismenn fari að safna titlum á næstu árum en þeir gætu kannski komið sér eins vel fyrir í deildinni og Fylkismenn gerðu í upphafi aldarinnar. Fylkir náði þá jafnmörgum stigum og Fjölnir í sumar í fyrstu átta leikjum sínum á öðru ári. Fylkismenn unnu bikarinn það ár sem og það næsta og þrátt fyrir að liðinu hafi ekki tekist að landa þeim stóra þá hefur það spilað í efstu deild allar götur síðan og lengst allra af liðunum í Pepsi-deildinni í sumar fyrir utan KR.

Aron Sigurðarson og Þórir Guðjónsson skoruðu mörk Fjölnis í sigrinum á Leikni og hafa þeir félagar þegar skorað mörg af flottari mörkum tímabilsins. Þórir hefur nú skorað í fjórum af síðustu fimm leikjum liðsins og samtals fimm mörk í deildinni en Aron virðist nú vera að springa út eftir að hafa lofað mjög góðu með flottri frammistöðu nokkrum sinnum í fyrrasumar.

Það er þó ekki síður varnarleikur liðsins sem er að leggja grunninn að velgengninni sem og það að heimavöllur liðsins hefur lifnað við eftir dapra mætingu í fyrra. Nú hafa mætt yfir þúsund manns að meðaltali á fyrstu fimm leikina og Fjölnisstrákarnir hafa séð til þess inni á vellinum að þar er einn allra besti heimavöllur deildarinnar í dag.

Fjölnisvörnin hefur aðeins fengið á sig eitt mark í fyrstu fimm leikjum sínum og 13 af 17 stigum liðsins hafa komið í hús á Fjölnisvellinum. Eftir 2-0 tap á KR-vellinum í 3. umferðinni leit ekki út fyrir að eitthvað spennandi væri í bígerð hjá Grafarvogsliðinu en nú fimm leikjum síðar hefur liðið náð í 13 stig í viðbót og unnið alla leiki nema þegar það gerði 3-3 jafntefli við Val á Vodafonevellinum.

Hvort þessi frábæra byrjun sé ávísun á komandi gullöld í Grafarvoginum er óvíst, en miðað við spilamennskuna í síðustu leikjum þá eru Fjölnismenn komnir til að vera í Pepsi-deildinni og hafa fyrir löngu sparkað annars árs draugunum yfir Gullinbrúna og í átt að Fossvoginum


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×