Misura skoraði úr einu víti en klúðraði öðru í jafntefli á Selfossi Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. maí 2015 21:00 Jósef Kristinn Jósefsson fiskaði seinni vítaspyrnuna. vísir/andri marinó
Selfoss og Grindavík skildu jöfn, 1-1, í fjórðu umferð 1. deildar karla í fótbolta á JÁVERK-vellinum á Selfossi í kvöld. Heimamenn voru marki yfir í hálfleik, en Ivanirson Silva Oliveira frá Grænhöfðaeyjum skoraði fyrir Selfoss strax á annarri mínútu leiksins, 1-0. Í seinni hálfleik fékk Grindavík vítaspyrnu á 63. mínútu þegar Alex Freyr Hilmarson var felldur í teignum. Slóvenski framherjinn Tomislav Misura fór á punktinn og skoraði framhjá Vigni Jóhannessyni, 1-1. Skömmu síðar fékk Grindavík aðra vítaspyrnu þegar bakvörðurinn Jósef Kristinn Jósefsson féll í teig Selfyssinga. Misura fór aftur á punktinn en að þessu sinni skaut Slóveninn í slána. Kjörið tækifæri til að vinna leikinn rann þar út í sandinn. Í uppbótartíma var Ivanirson Silva Oliveira svo rekinn af velli þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Lokatölur, 1-1. Liðin eru áfram í 8. og 9. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fjórar umferðir.
Íslenski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Fleiri fréttir Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ „Sigurinn nærir“ „Margt jákvætt í leik okkar að þessu sinni“ Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Héldu út manni færri þar til átta mínútur voru eftir Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Róbert Frosti fagnaði sigri en Brann kastaði frá sér góðri forystu Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Ítalía nær ekki að krækja í Guardiola Modric tekur slaginn áfram í Mílanó Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík „Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“ Arnór í leyfi frá störfum Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands