Fyrrum meðlimir Top Gear með nýjan þátt sem gæti heitið House of Cars Kjartan Atli Kjartansson skrifar 13. maí 2015 13:33 Hér má sjá þríeykið á góðri stundu.
Talið er að Jeremy Clarkson, James May og Richard Hammond séu að fara yfir á ITV-sjónvarpsstöðina og að þeir ætli sér að nefna nýjan þátt House of Cars. Nafnið er augljós vísun í hina vinsælu þætti House of Cards, með Kevin Spacey í aðalhlutverki. Þeir hafa verið að gera það gott á Netflix. Fjölmiðlar í Bretlandi hafa margir velt því fyrir sér hvað verði um hina vinsælu þáttaröð Top Gear, eftir að Jeremy Clarkson var rekinn fyrir að veitast að einum framleiðanda þáttanna. Top Gear, sem var á dagskrá BBC - breska ríkisútvarpsins - naut vinsælda um allan heim. Einstakt samband þremenninganna sem stýrðu þáttunum skilaði sér vel til áhorfenda. Nafnið Top Gear er í eigu breska ríkissjónvarpsins og þurfa þeir Clarkson, May og Hammond að finna sér nýtt nafn á þáttinn sinn. Aðstandendur BBC hafa gætt þess að nafn þáttarins sé ekki notað annars staðar, til að mynda mátti þríeykið ekki nota það þegar það kom fram opinberlega á skemmtunum. Á vefmiðli breska dagsblaðsins Mirror kemur fram að nafnið House of Cars þyki vænlegur kostur sem titill á nýju þættina. Í það minnsta er ljóst að nafnið muni vekja athygli. Í umfjöllun breskra fjölmiðla kemur þó fram að einhverjir í kringum þremenningana hafi áhyggjur af ritstjórnarlegu frelsi þeirra, ákveði þeir að fara yfir á ITV. Þykir ljóst að Clarkson vilji geta sagt nákvæmlega það sem hann vill segja hverju sinni. Menn hafa af því áhyggjur að Clarkson, May og Hammond fái ekki leyfi til þess að vera jafn afdráttarlausir í skoðunum sínum á tilteknum bílategundum, sem framleiddar eru af fyrirtækjum sem kaupa auglýsingar hjá stöðinni.
Mest lesið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Lífið Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið