Heilsa

Útivist og áskoranir: „Ég var ennþá á lífi og ákvað að byrja í þríþraut“

Elísabet Margeirsdóttir skrifar
Í vikunni hitti ég Melkorku Árnýju Kvaran framkvæmdastjóra Kerrupúls, en hún býður nýbökuðum foreldrum upp á skemmtilega útihreyfingu allt árið um kring í Laugardalnum.

 

Kerrupúlið hefur aðstoðað margar mæður við að koma sér í form bæði andlega og líkamlega eftir barnsburð. „Við höfum fengið til okkar konur með mikla grindargliðnun og náð að styrkja þær svo að þær geti sinnt daglegu starfi sem þær áttu erfitt með fyrir námskeiðið“.

 

„Það er þvílík veðursæld í dalnum og mun skjólsælla þar en annars staðar í borginni og oft tveimur gráðum hlýrra. Margar konur á námskeiðum hjá okkur koma langt að, við höfum meira að segja verið með konur sem hafa keyrt frá Keflavík og Akranesi til að koma á Kerrupúlsnámskeið, segir Melkorka.

 

Kerrupúl á Facebook

 

Stefnir á hálfan járnkarl

Við fylgdumst með Kópavogsþrautinni um síðustu helgi og á meðal keppenda var Pálmi Guðlaugsson. Pálmi sem er 27 ára gamall fæddist spastískur og er fyrsti hreyfihamlaði Íslendingurinn til að keppa í þríþraut.

 

Þetta var þriðja keppnin hans á ferlinum en Pálmi er fyrrum afreksmaður í sundi. Sama ár og hann hóf hlaupaæfingar fékk hann skyndilega blóðtappa í heila og var útlitið ekki gott.

 

Eftir meðferð nokkrum mánuðum síðar gaf taugalæknir honum leyfi til að hefja æfingar á ný. Þá ákvað hann að takast á við nýja áskorun og hefja nýjan íþróttaferil í þríþraut. Pálmi ræddi við okkur um gengi hans í keppninni og næstu markmið. 


Tengdar fréttir

Fyrsta þríþraut sumarsins fór af stað í snjókomu

Glæsileg þríþraut var haldin í Kópavogi í dag og einnig var boðið upp á fjölskylduþríþraut. Aðstæður voru skrautlegar til að byrja með en það snjóaði þegar fyrsti hópur var ræstur.

Nítján Íslandsmet í Ásvallalaug

Sannkallað metaregn var á fyrri degi Íslandsmóts fatlaðra í sundi í 25 metra laug sem fram fer í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×