Sport

Laumaði Viagra í glös liðsfélaganna

Manny Ramirez fagnar með Red Sox.
Manny Ramirez fagnar með Red Sox. vísir/getty
Hafnaboltaleikmaðurinn Manny Ramirez var mikill hrekkjalómur.

Hann spilaði með 2004-liði Boston Red Sox sem varð MLB-meistari. Það var í fyrsta sinn frá árinu 1918 sem Red Sox vann World Series eins og úrslitaeinvígið kallast

Dramatíkin var líka alls ráðandi þetta tímabil. Red Sox var 3-0 undir í rimmunni gegn NY Yankees og í fjórða leiknum var liðið 4-3 undir í 9. lotu. Þá hófst ótrúleg endurkoma sem endaði með því að Red Sox vann leikinn og næstu þrjá leiki í viðbót.

Í úrslitunum valtaði Red Sox svo yfir St. Louis Cardinals, 4-0, og varð meistari.

Þegar allt var í rugli í rimmunni gegn Yankees ákvað Ramirez að gera félögum sínum grikk. Hann laumaði stinningarlyfinu Viagra í glösin þeirra er þeir voru að lyfta sér upp. Sú upplyfting gekk fullkomlega upp að öllu leyti eins og áður segir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×