UNA skincare hlýtur verðlaun Íslandsstofu Atli Ísleifsson skrifar 29. apríl 2015 11:22 Björn H. Reynisson, verkefnisstjóri Íslandsstofu, Brynhildur Ingvarsdóttir, Una skincare, Martha Eiríksdóttir, Lítill heimur ehf., Garðar Þorvarðsson, Kvikna ehf., Arnhildur Ásdís Kolbeins, RST Net ehf., Nadine Walter, Sæferðir ehf., Vilborg Einarsdóttir, formaður stjórnar Íslandsstofu og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri.
Íslandsstofa hefur afhent fyrirtækinu UNA skincare viðurkenningu fyrir bestu markaðs- og aðgerðaáætlun í útflutningsverkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur (ÚH). Var hún afhent á ársfundi Íslandsstofu í gær. Á ársfundinum fór einnig fram útskrift fyrirtækja, sem luku ásamt UNA skincare, ÚH verkefninu sem hefur það markmið að aðstoða fyrirtæki sem stefna á alþjóðamarkað við að gera markaðs- og aðgerðaáætlun. Rúmlega 200 fyrirtæki hafa frá upphafi tekið þátt í verkefninu sem hefur verið starfrækt síðastliðin 25 ár. Í tilkynningu frá Íslandsstofu segir að í ár hafi sjö fyrirtæki lokið við gerð áætlunarinnar sem unnin er á sjö mánaða tímabili. „Íslandsstofa hittir fyrirtækin einu sinni í mánuði, tvo daga í senn og fá þau aðstoð ráðgjafa við vinnuna auk þess sem haldnir eru fyrirlestrar um þá þætti sem hafa ber í huga við markaðs- og aðgerðaáætlanagerð fyrir útflutning. Íslandsstofa hefur verið í samstarfi viðskiptafræðideild Háskóla Íslands vegna verkefnisins og fá nemar í alþjóðamarkaðssetningu tækifæri til að koma inn í verkefnin og starfa með fyrirtækjunum að greiningu á markaðstækifærum.Verðlaunahafinn UNA skincare hefur nú þegar stigið fyrstu skrefin á erlendum markaði en fyrirtækið þróar og framleiðir vandaðar, náttúrulegar húðvörur. Húðvörurnar innihalda einstök lífvirk efni sem einangruð eru úr íslenskum sjávarþörungum. Rannsóknir hafa staðfest að vörurnar hafa mjög jákvæð áhrif á húðina. Viðfangsefni verkefnisins var útflutningur á UNA skincare húðvörum til Þýskalands.Verkefnið er gagnlegt fyrirtækjum sem stefna á útflutningFyrirtæki sem hafa tekið þátt í ÚH eru af öllum stærðum og gerðum. Þar má nefna fyrirtæki á borð við Össur og Marel sem tóku þátt í upphafi. Einnig Mentor, True North, Jarðböðin, TrackWell, Sæmark, Batteríið Arkitektar, Mannvit og Nói Síríus. Sum fyrirtækin eru ung og að stíga fyrstu skrefin á erlendan markað, önnur eru rótgróin og hafa verið í útflutningi um hríð en vilja gera vinnu sína markvissari og skilvirkari.Samstarfsaðilar Íslandsstofu í verkefninu eru Samtök iðnaðarins, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnulífinu og Landsbanki Íslands,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira