Fótbolti

Enrique: Þess vegna borguðum við svona mikið fyrir Suarez

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Luis Suarez var hetja Barcelona er hann tryggði sínum mönnum 2-1 sigur á Real Madrid í El Clasico í gær og Börsungum fjögurra stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar.

Suarez var keyptur til Barcelona frá Liverpool í sumar fyrir tæpa fjórtán milljarða króna - um 94 milljónir evra.

„Hann spilaði mjög vel í síðari hálfleik, eins og hann gerði reyndar í þeim fyrri líka. Þess vegna borguðum við svona mikið fyrir Suarez,“ sagði Enrique.

„Ég er ánægður með að vera með leikmann sem getur tekið af skarið. Við höfum verið afar ánægðir með hann síðan hann kom og það sem hann hefur fært liðinu.“

„Suarez er ekki bara venjulegur gamaldags sóknarmaður. Hann veit hvernig hann á að ná til samherja sinna, er góður skotmaður, harður af sér og hentar vel okkar leikstíl.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×