Vilborg aftur á Everest: Þurfti áfallahjálp eftir slysið Stefán Árni Pálsson skrifar 24. mars 2015 10:10 Vilborg leggur af stað í næstu viku. vísir/aðsend/getty „
Já, það er framundan stórt og mikið ferðalag,“ segir Vilborg Arna Gissurardóttir í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. Vilborg ætlar að gera aðra tilraun til að klífa Everest en hún varð að snúa við á síðasta ári þegar snjóflóð féll í fjallinu með þeim afleiðingum að fjöldi manns lét lífið. „Ég fór í raun af stað á sama tíma fyrir ári síðan og náði aðeins upp í grunnbúðir, komst aldrei á fjallið sjálft. Þegar við vorum á fimmta degi fellur einskonar ísflóð sem verður til þess að sextán manns láta lífið. Í kjölfarið er hætt við alla leiðangra og næstum því allir koma heim.“ Slysið átti sér stað þann 18. apríl á síðasta ári þegar Vilborg var stödd í hlíðum Everest en snjóflóðið féll skammt frá grunnbúðunum. Um er að ræða eitt mannskæðasta slys sem gerst hefur á fjallinu. „Ég viðurkenni það alveg að þetta er öðruvísi en í fyrra. Í fyrra var maður bara spenntur og á leiðinni að upplifa drauminn sinn. Slysið á síðasta ári var einfaldlega mikið áfall og manni leið mjög illa. Ég átti erfitt með að klífa fjöll hér í kringum Reykjavík og fannst óþægilegt að fara upp Esjuna. Ég var í raun bara meidd og þurfti t.d. að snúa við þegar ég ætlaði einn daginn upp Eyjafjallajökul. Íþróttamenn lenda stundum í þessu þegar þeir verða fyrir áfalli upplifa þeir meiðsli sem tengjast beint við það andlega áfall sem þeir urðu fyrir.“Vilborg er að leggja af stað á Everest.Vilborg segist hafa fengið áfallahjálp og mikla aðstoð frá sjúkraþjálfara. „Ég leitaði mér aðstoðar nokkuð snemma, nokkrum vikum eftir að ég kom heim og það skipti mig gríðarlega miklu máli og hjálpaði mér mikið. Þegar maður upplifir svona stóra hluti, þá veit maður ekki alveg hvað maður á að gera við það,“ segir Vilborg sem ákvað fljótlega að sigrast á hræðsluna og kleif sjötta hæsta fjall veraldar Cho Oyu stuttu síðar. „Það var mjög stór sigur fyrir mig. Þá var ég fyrsta og eina konan heiminum sem hafði gengið ein á pól og hefur klifið 8000 metra tind ein.“ Ingólfur Ragnar Axelsson hefur sett stefnuna á ný á topp Everest-fjallsins ári eftir mannskæðasta slys í sögu fjallsins. Ingólfur hélt til Nepals í byrjun mars og mun hann hefja ferð sína á tindinn þann 5. apríl næstkomandi.Sjá einnig; Ingólfur reynir aftur við Everest: „Maður verður að klára þetta“ Vilborg starfar í raun sem fjallgöngumaður. „Það eru þrjú ár síðan ég vann 9-5 vinnu. Ég er að selja fyrirlestrana mína, gefið út bækur, selja ferðir og það hefur svona verið mín atvinna. Maður kemst samt aldrei af stað í svona stóra leiðangra nema vera með gott bakland og ég hef unnið með VÍS, Íslandsbanka, 66 gráður norður og HL adventure og ég kæmist aldrei neitt án þeirra.“ Vilborg leggur af stað í næstu viku og kemur aftur til Íslands í júní.
Vilborg Arna Tengdar fréttir Ingólfur á leið af Everestfjalli Segir hóp Sjerpa hafa hótað líkamsmeiðingum. 25. apríl 2014 11:01 Vilborg Arna tekur þátt í umönnunarstörfum á Everest Vilborg Arna vaknaði við hávaðann í snjóflóðinu og fylgdist hún með björgunaraðgerðum í nótt. Hún hlúir nú að hinum slösuðu í sjúkratjöldum í grunnbúðum Everest. 18. apríl 2014 09:53 Aðstandendur sjerpanna vilja hærri bætur Þrettán eru látnir og leit hefur verið hætt að þeim þremur sem enn er saknað. 22. apríl 2014 07:30 Án súrefnis á sjötta hæsta tindinn Vilborg Arna Gissurardóttir og vinur hennar Atli Pálsson hefja á miðvikudaginn leiðangur upp fjallið Cho You í Tíbet, sjötta hæsta fjall jarðarinnar. 1. september 2014 14:39 Vilborg Arna: „Get ekki réttlætt áframhaldandi för“ Leiðsögumenn á Everestfjalli hafa lagt niður störf og undirbúa nú brottför af fjallinu. 22. apríl 2014 15:55 „Vonbrigði mín eru ekkert miðað við veruleika þeirra sem misstu ástvini“ Fjallaleiðsögumenn á Everest tóku í dag ákvörðun um að hætta frekari ferðum á fjallið, í kjölfar kjarabaráttu sem til kom vegna snjóflóðsins sem varð sextán félögum þeirra að bana. Íslendingarnir tveir sem staddir eru í grunnbúðum fjallsins segjast styðja ákvörðunina. 22. apríl 2014 19:15 Engar ferðir á tind Everestfjalls í ár Leiðsögumenn hafa lagt niður störf og undirbúa nú brottför af fjallinu. 22. apríl 2014 11:27 Ingólfur fer á Everest Hann mun fara með tíu öðrum fjallgöngumönnum upp fjallið. 23. apríl 2014 10:42 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Vilborg Arna tekur þátt í umönnunarstörfum á Everest Vilborg Arna vaknaði við hávaðann í snjóflóðinu og fylgdist hún með björgunaraðgerðum í nótt. Hún hlúir nú að hinum slösuðu í sjúkratjöldum í grunnbúðum Everest. 18. apríl 2014 09:53
Aðstandendur sjerpanna vilja hærri bætur Þrettán eru látnir og leit hefur verið hætt að þeim þremur sem enn er saknað. 22. apríl 2014 07:30
Án súrefnis á sjötta hæsta tindinn Vilborg Arna Gissurardóttir og vinur hennar Atli Pálsson hefja á miðvikudaginn leiðangur upp fjallið Cho You í Tíbet, sjötta hæsta fjall jarðarinnar. 1. september 2014 14:39
Vilborg Arna: „Get ekki réttlætt áframhaldandi för“ Leiðsögumenn á Everestfjalli hafa lagt niður störf og undirbúa nú brottför af fjallinu. 22. apríl 2014 15:55
„Vonbrigði mín eru ekkert miðað við veruleika þeirra sem misstu ástvini“ Fjallaleiðsögumenn á Everest tóku í dag ákvörðun um að hætta frekari ferðum á fjallið, í kjölfar kjarabaráttu sem til kom vegna snjóflóðsins sem varð sextán félögum þeirra að bana. Íslendingarnir tveir sem staddir eru í grunnbúðum fjallsins segjast styðja ákvörðunina. 22. apríl 2014 19:15
Engar ferðir á tind Everestfjalls í ár Leiðsögumenn hafa lagt niður störf og undirbúa nú brottför af fjallinu. 22. apríl 2014 11:27
Ingólfur fer á Everest Hann mun fara með tíu öðrum fjallgöngumönnum upp fjallið. 23. apríl 2014 10:42