Válynd veður Jakob Bragi Hannesson skrifar 17. mars 2015 12:58 Helgi Hálfdánarson sá mikli spekingur; þýðandi Shakespeares á íslensku, ræddi það einhverju sinni, hversu mörg orð í íslensku féllu illa að merkingu sinni. Vor sem á að lýsa gleði og bjartsýni er dapurt í framburði; samtóna orðinu hor og slor. Sá sem fann upp orðið vor á íslensku hafði ekki sömu sýn á gróandann og sá sem fann upp orðið "spring" í ensku. Brunagaddur er oftast á vorin á Íslandi og mörlandinn á því að venjast að vera með hor í nösum og slor á höndum. Á sama hátt er "kona" dapurt orð á íslensku. Í dönsku er mikill kraftbirtingarhljómur í orðinu kona eða ; "kvinde" Það hversu lítill kraftbirtingahljómur er í orðinu "kona" hlýtur að heimfærast upp á almenna vesöld og vosbúð, sem við höfum búið við í þessu guðs volaða landi. Þetta er umhugsunarvert en vonandi er hún "Snorrabúð stekkur". Ef við ætlum á ný að sjá ljósið og "kraftbirtingarhljóm guðdómsins" verðum við að átta okkur á þeirri einföldu staðreynd, að á Íslandi eru aðeins tvær árstíðir; haust og vetur. "Veðurkæti" mörlandans um ókomna framtíð byggist á þeirri uppgötvun og greiningu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Sjá meira
Helgi Hálfdánarson sá mikli spekingur; þýðandi Shakespeares á íslensku, ræddi það einhverju sinni, hversu mörg orð í íslensku féllu illa að merkingu sinni. Vor sem á að lýsa gleði og bjartsýni er dapurt í framburði; samtóna orðinu hor og slor. Sá sem fann upp orðið vor á íslensku hafði ekki sömu sýn á gróandann og sá sem fann upp orðið "spring" í ensku. Brunagaddur er oftast á vorin á Íslandi og mörlandinn á því að venjast að vera með hor í nösum og slor á höndum. Á sama hátt er "kona" dapurt orð á íslensku. Í dönsku er mikill kraftbirtingarhljómur í orðinu kona eða ; "kvinde" Það hversu lítill kraftbirtingahljómur er í orðinu "kona" hlýtur að heimfærast upp á almenna vesöld og vosbúð, sem við höfum búið við í þessu guðs volaða landi. Þetta er umhugsunarvert en vonandi er hún "Snorrabúð stekkur". Ef við ætlum á ný að sjá ljósið og "kraftbirtingarhljóm guðdómsins" verðum við að átta okkur á þeirri einföldu staðreynd, að á Íslandi eru aðeins tvær árstíðir; haust og vetur. "Veðurkæti" mörlandans um ókomna framtíð byggist á þeirri uppgötvun og greiningu.
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar