Trúfrelsi barna Natan Kolbeinsson og Ída Finnbogadóttir skrifar 4. mars 2015 14:58 Mikil umræða hefur staðið undanfarin ár um stjórnarskrána, hvernig umgjörðinni um stjórnskipan lýðveldisins skuli háttað og þann rétt sem henni er ætlað að tryggja borgurunum. Í 74. grein stjórnarskrár lýðveldisins er ákvæði sem ætlað er að tryggja okkur félagafrelsi, samkvæmt ákvæðinu á það að vera undir okkur sjálfum komið hvort við viljum tilheyra ákveðnum félagskap eða ekki. Þó hefur Alþingi allt fram á síðustu ár sett þessu frelsi skorður. Auk félagafrelsis er í stjórnarskrá ákvæði um trúfrelsi. En til hverra nær þetta trúfrelsi nákvæmlega? Þegar við ræðum trúfrelsi þá gleymist oft að börn eru sjálfkrafa skráð í það trúfélag sem foreldrar þeirra tilheyra og trúfrelsi þeirra þar með settar skorður. Síðustu mánuði hefur sprottið upp umræða um hvernig hátta eigi samskiptum þjóðkirkjunnar (og trúfélaga almennt) við skóla. Á að fara í kirkjuheimsóknir á skólatíma, gefa 5. bekkingum Nýja testamentið o.s.frv. Þeir sem gagnrýnt hafa það fyrirkomulag sem komist hefur á síðustu áratugi hafa verið sakaðir um einhverskonar árás á kristin gildi eða þjóðkirkjuna. Flestir sem gagnrýnt hafa kirkjuheimsóknir í núverandi mynd hafa þó getað fellt sig við hana sem þátt í trúarbragðafræðslu, slík kynning þyrfti þó að felast í öðru en að hlýða á jólahugvekjuna eða annað trúboð í hefðbundnum skilningi. Okkur að vitandi hafa skólayfirvöld heldur ekki lagt sig eftir að skipuleggja heimsóknir í trúfélög sem part af trúarbragðafræði nema þegar kemur að því að heimsækja kirkjuna. Þessi tvö mál, skráning í trúfélag og kirkjuheimsóknir skólabarna, virðast kannski ekki eiga margt sameiginlegt. Það er samt þannig að þau snúast hvoru tveggja að miklu leiti um trú- og félagafrelsi barna. Bæði frelsi barna til mynda sé sínar eigin trúarskoðanir áður en þau eru skráð í trúfélag og réttur þeirra til að stunda nám sitt án þess að utanaðkomandi aðilar reyni að hafa þar áhrif á trúarviðhorf þeirra, varða trúfrelsi barnsins. Líkt og öll önnur félagasamtök ættu trúfélög ekki að eiga rétt á að skrá til sín einstaklinga sem hvorki hafa aldur eða forsendu til þess að mynda sér sjálfstæðar skoðanir um trúmál. Réttur foreldra til að ala börnin sín upp eins og þeim sýnist best er mikill. En hvenær fer sá réttur að skarast á við eðlileg réttindi barnsins? Í samfélagi þar sem trúfrelsi er stjórnarskrárvarið hlýtur það að vera sjálfsögð krafa okkar allra að ekkert trú- eða lífsskoðunar félag hafi rétt á því að skrá til sín meðlimi sem ekki sækjast eftir því sjálfir. Ef boðlegt er að skrá barn sem meðlim í trúfélag við fæðingu, hvað er þá því til fyrirstöðu að skrá það á sama tíma í stjórnmálaflokk eða önnur félagasamtök, sum hver jafnvel með djúpar rætur í samfélaginu? Hvern langar ekki að fæðast inn í góðtemplararegluna eða kvenfélagið Gleym mér ei á Grundarfirði? Ættum við ekki leyft börnum að njóta vafans þar til þau hafa aldur til þess að mynda sér sínar eigin skoðanir? Höfundar eru stjórnarmenn í Ungum jafnaðarmönnum Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun