Sport

Einar Daði ekki með í sjöþrautinni vegna veikinda

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Einar Daði hefur verið öflugur á árinu, þótt vonbrigðin séu mikil.
Einar Daði hefur verið öflugur á árinu, þótt vonbrigðin séu mikil. vísir/anton
Ekkert verður af þátttöku Einars Daða Lárussonar á EM frjálsum íþróttum innanhúss í Prag um helgina.

Einar, sem átti að vera einn 15 keppenda í sjöþrautinni, er með slæma flensu. Þetta staðfesti hann í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld.

"Þetta er frekar fúlt. Ég get ekki keppt, ég er það veikur. Ég veit bara ekki hvað ég á að segja, þetta er alveg rosalega svekkjandi," sagði Einar við Morgunblaðið, en hann veiktist fyrstu nóttina eftir komuna til Prag.

Aníta Hinriksdóttir er því eini íslenski keppandinn sem er enn með á mótinu. Hún keppir í undanúrslitum í 800 metra hlaupi en þau hefjast klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Úrslitahlaupið er svo klukkan 14:45 á morgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×