Calderón: Mourinho þoldi ekki pressuna hjá Real Madrid Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. febrúar 2015 08:00 Það er sjaldan lognmolla í kringum José Mourinho. vísir/getty
Ramón Calderón, fyrrverandi forseti Real Madrid, segir að José Mourinho hafi ekki ráðið við pressuna sem fylgir því að þjálfa spænska stórliðið. „Það er mjög, mjög erfitt að vera knattspyrnustjóri Real Madrid. Sjáið bara Mourinho,“ sagði Calderón í samtali við BBC. „Hann er vanur að starfa undir pressu en hann réði ekki við hana hjá Real Madrid,“ bætti Calderón við en Mourinho yfirgaf Madrídinga sumarið 2013 eftir þrjú ár við stjórnvölinn hjá félaginu. Á þessum þremur árum vann Real Madrid Spánarmeistaratitilinn og spænska Konungsbikarinn en Mourinho tókst ekki að landa Meistaradeildartitlinum sem honum var ætlað að gera. Sögusagnir voru um að Mourinho hefði lent upp á kant við nokkra lykilmenn Real Madrid undir lok stjórnartíðar sinnar en Calderón segir að allt hafi verið í kalda koli þegar Portúgalinn yfirgaf félagið. „Þegar Mourinho fór var ástandið virkilega vont. Hann varð að yfirgefa félagið eftir stormasöm þrjú ár,“ sagði Calderón sem gegndi forsetastöðunni hjá Real Madrid á árunum 2006-2009, en á þeim tíma varð félagið Spánarmeistari í tvígang. Calderón er öllu ánægðari með Carlo Ancelotti sem tók við knattspyrnustjórastöðunni af Mourinho sumarið 2013. Undir hans stjórn varð Real Madrid Evrópu- og bikarmeistari á síðasta tímabili. „Hann hefur gert mjög góða hluti, ekki bara því hann vann Meistaradeildina heldur vegna þess að það er meiri ró og yfirvegun yfir öllu,“ sagði Calderón.
Spænski boltinn Mest lesið Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Enski boltinn Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Enski boltinn Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Sport Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Körfubolti Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Fleiri fréttir Rekinn eftir 8-0 sigur „Ísland er með óþægilegt lið“ Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Skoða leiðir fyrir knattspyrnustjóra til að skora á dóma í enska boltanum „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Gakpo leit upp til Alberts Aftur tapaði Real og rauða spjaldið tvisvar á loft Hanga fyrir ofan strik á markatölu Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ „Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking Sonur Åge Hareide ráðinn til Molde Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Væri kominn í þúsund mörk ef hann hefði nýtt öll vítin Chelsea jafnaði metið sem lið Heiðars Helgu setti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hvað er hann að gera hér?“ „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Hefur aldrei fengið hausverk á ævinni Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Allir sem hylji munninn verði reknir út af Dramatík hjá gömlu konunni í Rómarborg Losnar um pressu á Sverrislausan Benítez Arsenal vann hornspyrnukonsert Dramatík hjá Hákoni Sögulega slakur árangur FCK Fjórða tap Tottenham í röð og fallhættan heldur áfram Sjá meira