Fótbolti

Beckham vill sjá Figo sem forseta FIFA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Beckham og Luis Figo fagna hér marki með Real Madrid.
David Beckham og Luis Figo fagna hér marki með Real Madrid. Vísir/Getty
David Beckham styður fyrrum liðsfélaga sinn hjá Real Madrid í kosningunum um forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem fram fara í maí.

Beckham lýsti yfir stuðningi sínum við Luis Figo sem ætlar sér að reyna að velta hinum umdeilda Sepp Blatter úr sessi.

Sepp Blatter hefur verið forseti FIFA frá árinu 1998 og er nú að sækjast eftir sínu fimmta kjörtímabili í röð.

Blatter fær ekki aðeins samkeppni frá Figo því jórdanski prinsinn Ali Bin Al Hussein og Michael van Praag, forseti hollenska sambandsins, bjóða sig einnig fram.

„Ég fagna því að vinur minn Luis ætlar að bjóða sig fram til forseta FIFA," sagði David Beckham. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, styður einnig framboðið.

„Öll vel heppnuð samtök þurfa á góðu fólki að halda, fólki sem hefur ástríðu fyrir leiknum og vilja gera sem best fyrir aðdáendurna.

„FIFA mun græða á því að svona margir góðir menn bjóða sig fram og ég óska Luis og hinum frambjóðendunum góðs gengis," sagði Beckham.

Luis Figo hefur starfað í fótboltanefnd UEFA frá 2011 og segist ætla að berjast fyrir betri stjórnun og meiri sýnileika hjá FIFA.

Luis Figo lék sinn síðasta leik árið 2009 en hann spilaði fyrir lið Sporting CP, FC Barcelona, Real Madrid og Internazionale á sínum ferli auk þess að spila 127 landsleiki fyrir Portúgal.

Luis Figo og David Beckham léku saman í tvö tímabil hjá Real Madrid, 2003-04 og 2004-05.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×