Alfreð og félagar búnir að vinna Real, Atlético og Barca Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2015 22:02 Xabier Prieto og Sergio Canales fagna í leiknum á móti Barcelona í kvöld. Vísir/AP
Real Sociedad vann í kvöld 1-0 sigur á Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðið hefur þar með unnið þrjú efstu liðin á þessu tímabili. Þrír af fjórum sigurleikjum Sociedad í spænsku deildinni í vetur hafa þar með komið á móti þessum þremur efstu liðum deildarinnar. Real Sociedad vann 2-1 sigur á Real Madrid 31. ágúst, 2-1 sigur á Atlético Madrid 9. nóvember og svo 1-0 sigur á Barcelona í kvöld. Allir leikirnir hafa farið fram á heimavelli Real Sociedad, Estadio Municipal de Anoeta. Real Sociedad hefur unnið risana þrjá á þessu tímabili en þeir hafa samt unnist undir stjórn þriggja þjálfara. David Moyes stýrði liðinu til sigurs í kvöld en liðið vann Real Madrid undir stjórn Jagoba Arrasate og það var Asier Santana sem stýrði liðinu til sigurs á Atlético Madrid. Eini sigurleikur Real Sociedad á móti hinum sextán liðum deildarinnar kom á móti neðsta liði deildarinnar, Elche, en Sociedad vann þá 3-0 sigur. Alfreð Finnbogason kom inná sem varamaður á móti Barcelona í kvöld en hann kom ekkert við sögu í sigurleikjunum á móti Real Madrid og Atlético Madrid. Real Sociedad hefur aðeins náð í 21 prósent stiga í boði á móti liðunum í 4. til 20. sæti.Real Sociedad á mótiliðunum í 1. til 3. sæti: 9 stig af 9 mögulegum - 100 prósent stiga í húsi Markatala: +3 (5-2)Real Sociedad á móti liðunum í 4. til 20. sæti: 9 stig af 42 mögulegum - 21 prósent stiga í húsi Markatala: -7 (13-20)
Spænski boltinn Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Sjá meira