Opið bréf til Árna Páls Natan Kobeinsson skrifar 8. janúar 2015 08:00 Kæri Árni Páll, Nú fer að styttast í að frestur til að skila inn framboði til formanns Samfylkingarinnar renni út og eins og staðan er núna sýnist mér engin ætla að bjóða sig fram gegn þér. Þú hefur á formannstíð þinni staðið þig með prýði að mörgu leyti. Þú hefur talað fyrir mörgum hjartans málum jafnaðarmanna á borð við húsnæðis- og menntamál. Þú hefur gert Samfylkinguna að leiðandi afli í stjórnarandstöðu. Þú hefur talað gegn skuldaniðurfellingu ríkisstjórnarinnar og bent á að hún gagnist síst þeim efnaminni. Þrátt fyrir það er margt sem betur hefði mátt fara í formannstíð þinni og langar mig að benda á tvö atriði sem mér þykja standa upp úr í þeim efnum. Það er óhjákvæmilegt að hefja gagnrýnina á því að tala um þjóðkirkjuna og háværan stuðning þinn fyrir því að mismuna trúfélögum með því að gefa einu trúfélagi stjórnarskrábundna æðri stöðu en öðrum líkt og raunin er nú. Þú hefur sagt að það séu sérstök rök fyrir samfylgd ríkis og kirkju en fátt hefur verið um svör við því hver þessu sérstöku rök eru. Það er mér og vafalaust mörgum öðrum jafnaðarmönnum ómögulegt að samþykkja slíkan stjórnarskrárbundinn ójöfnuð. Með þessu er ég ekki að biðja þig að gangast bak þinni persónulegu trú heldur fremur að taka til greina níundu grein yfirlýsingu grunngilda evrópuflokks jafnaðarmanna frá árinu 2011, það sem kveður á um að ríki og kirkja skuli vera aðskilin. Ef skoðanabræður okkar og systur í löndum eins og Pólandi, Ítalíu og víðar geta gert það, þá ættum við svo sannarlega að geta það. Auk þess þætti mér gaman að sjá þig beita þér frekar í málefnum verkalýðsins. Við erum í öldu verkfalla af stærðrargráðu sem mín kynslóð hefur aldrei kynnst. Fyrsta læknaverkfall íslandssögunnar er nú ný yfirstaðið og allt of lítið hefur heyrist frá leiðtoga jafnaðarmanna sem á að vera hvað háværastur í því að krefjast leiðréttingar á launum þessar stéttar sem við getum ekki lifað án. Tónlistakennarar fóru einnig í verkfall og minnist ég þess ekki að það hafi yfirhöfuð ratað í umræðuna á Alþingi. Sú ríkisstjórn sem núna er við völd hefur set lögbann á fleira en eitt verkfall og þar að auki hótað lögbanni með þeim afleiðingum að ekkert varð úr verkfalli. Þetta sýnir hvað best mikilvægi þess að jafnaðarmenn séu í ríkisstjórn. Þessi lögbönn hafa flogið í gegn ef frá eru talin hávær mótmæli Helga Hjörvars þegar eitt af þessum lögbönnum var keyrt í gegnum þingið. Við jafnaðarmenn veðrum að standa vörð um verkfallsréttinn og verja hann með kjafti og klóm. Ég verð að viðurkenna það að ég sakna Árna Páls sem ég sá flytja ræðu við lok landsfundar 2011 þar sem þú talaðir af ástríðu um kjaramál og réttlátt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 04.04.2026 Halldór Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson Skoðun Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson skrifar Skoðun Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Horn í síðu fyrirtækjareksturs Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar