Sport

Boston sækir um ÓL 2024

Borgaryfirvöld í Boston eru þegar byrjuð að skipuleggja umferðina og fleiri fyrir leikana.
Borgaryfirvöld í Boston eru þegar byrjuð að skipuleggja umferðina og fleiri fyrir leikana. vísir/getty
Ólympíunefnd Bandaríkjanna tilkynnti í gær að Boston muni sækja um sumarólympíuleikana árið 2024 fyrir hönd þjóðarinnar.

Boston hafði betur gegn Los Angeles, San Francisco og Washington sem öll höfðu áhuga á að halda leikana.

Boston er mikil íþróttaborg og ekki bara í atvinnumannaíþróttunum heldur einnig í háskólaíþróttum. Það er nóg af íþróttamannvirkjum til nú þegar og þeim verður svo fjölgað fái borgin leikana.

Næstu sumarleikar eru í Ríó á næsta ári og árið 2020 er komið að Tókýó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×