Nágranna-stjarna átti erfitt með að lifa ódýrt á Íslandi sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. september 2015 12:30 James á fjölmarga aðdáendur á Íslandi. "Það kom mér mikið á óvart að sjá hversu margir fylgjast með þáttunum á Íslandi. Ég heyrði reglulega "Chris - James“, en þótti það bara gaman.“ vísir/anton brink
Eflaust kannast aðdáendur Nágranna við hinn elskulega Chris Pappas, sem leikinn er af James Mason. James var staddur hér á landi á dögunum til að taka upp ferðaþætti sem sýndir verða víða um heim á næsta ári. Hann segist elska Ísland og getur varla beðið eftir að koma aftur. „Ferðin er búin að vera æðisleg í alla staði. Landslagið er stórkostlegt og í raun hefði ég aldrei getað ímyndað mér að heimurinn hefði upp á svo fallega staði að bjóða, ég hef til dæmis aldrei séð eins marga fossa og á þessum fjórum vikum sem ég hef verið hér,“ segir James í samtali við Vísi. Hann ber Íslendingum söguna vel og segir þá sérstaklega indæla.James hafði heyrt margt um Ísland frá góðvini sínum, Alan Fletcher.vísir/anton brinkÆtlaði til Íslands með Alan Fletcher„Íslendingar eru frábærir. Allir eru einstaklega vingjarnlegir og boðnir og búnir að hjálpa. Rólegir og yfirvegaðir og bara virkilega frábærir. Ég hef kynnst góðu fólki hér sem ég mun alveg örugglega halda sambandi við,“ segir hann og bætir við að hann hafi heyrt margt gott um land og þjóð frá góðvini sínum Alan Fletcher, sem leikur Karl Kennedy í þáttunum, þegar hann kom hingað til lands í janúar. „Alan hafði sagt mér allt um sína ferð en ég held að hún hafi verið dálítið frábrugðin minni því það var dimmt nánast allan tímann sem hann var á Íslandi. En það er dálítið fyndið að segja frá því að ég ætlaði að fara með honum í þessa ferð því Nágrannar eru í framleiðsluhléi á þessum tíma. Hins vegar kom dálítið upp þannig að ég komst ekki.“ Nágrannarnir allir góðir vinirHann segir, aðspurður, að allir séu eins góðir vinir og þeir líta út fyrir að vera í þáttunum. Sumir þó vissulega betri vinir en aðrir. „Saskia Hampele, sem leikur Georgiu er ein mín besta vinkona. Við einhvern veginn smullum saman um leið og við kynntumst.“En, er einhver sem þér líkar ekki við? „Nei mér líkar við alla sem ég vinn með. En ef ég á að velja karakter sem mér líkar ekki við ætli það sé þá ekki bara Josh, eftir að hann kýldi mig,“ segir hann og hlær. James leikur sem fyrr segir Chris Pappas í þáttunum. Hann segir þá tvo heldur líka einstaklinga, en reynir þó að passa sig á að aðskilja sig frá sínum hlutverkum. „Við erum líkir að mörgu leyti, til dæmis er Chris alltaf sá sem kemur á milli þeirra sem rífast og reynir að finna lausn á málunum, þannig er ég líka. En mér finnst mikilvægt að við séum ekki of líkir og ég tek karakterinn aldrei með mér heim.“James og Meyne Wyatt, eða Nate Kinski og Chris Pappas.Chris Pappas er í þáttunum samkynhneigður, og segist James reglulega fá spurningar um hvort hann sé það sjálfur. Það sé hann ekki og viðurkennir að það hafi verið áskorun að leika samkynhneigðan einstakling. „Mig grunaði allan tímann að Chris væri samkynhneigður, en handritshöfundar héldu því leyndu lengi vel. Það var áskorun að leika samkynhneigðan mann en ég hef gaman að áskorunum. Fyrst um sinn pældi ég í því hvað fólk myndi hugsa um mig og minn karakter en það breyttist fljótt.“ Leggur Pappas á hillunaJames ákvað seint á síðasta ári að feta nýja slóðir og leggja Chris Pappas á hilluna um tíma. Hann segir ákvörðunina hafa verið afar erfiða, en að mikilvægt sé að taka áhættu í lífinu. Draumur hans sé að starfa sem leikari í Bandaríkjunum. „Eins mikið og ég elska Nágranna og alla þá sem ég vinn með þá var kominn tími til að breyta til en ég hafði verið í þáttunum í fimm ár. Þetta er frábær vinna en það er svo margt sem ég vil gera á mínum leiklistarferli og mér fannst þetta rétti tíminn til að hætta, að minnsta kosti áður en það yrði of seint,“ segir hann. James kom inn í þættina sem gestaleikari árið 2010 og segist ekki hafa átt von á að fá að dvelja í þeim svo lengi. Fyrir það er hann hins vegar afar þakklátur.„Mér líkar við alla sem ég vinn með. En ef ég á að velja karakter sem mér líkar ekki við ætli það sé þá ekki bara Josh, eftir að hann kýldi mig.“vísir/anton brink„Ég væri ekki á þessum stað sem ég er á í dag ef ekki fyrir Nágranna. Nánast allt sem ég kann í dag lærði ég þar, samstarfsfólk mitt er mér sem fjölskylda og vinnan var mér sem skóli. En erfiðu og stóru ákvarðanirnar í lífinu verða oft þær bestu, og nú vona ég bara það besta.“Erfitt að ferðast ódýrt á ÍslandiJames er nú að leggja lokahönd á ferðaþættina, The Budget Backpacker, sem ganga út á það að ferðast á sem ódýrastan máta. Hann segir það þó hafa reynst sér þrautinni þyngri á Íslandi „Ég viðurkenni það að það var heldur erfitt að ferðast hér ódýrt. Hins vegar eru ótal staðir á Íslandi sem hægt er að heimsækja, án þess að þurfa að greiða fyrir það,“ segir hann og nefnir Landmannalaugar, Hrunalaug og Sólheimasand.Myndir frá ferðalagi hans má sjá hér fyrir neðan. Found this fantastic, secluded little geothermal pool surrounded by mountains and waterfalls. It was worth the hike in there. @thebudgetbackpacker @explorewithmax @yanga_code @caryan2 @notjoliebutangelina @kilestumbo #andmatt #budgetbackpacker #iceland A photo posted by James Mason (@jamesmason19) on Sep 10, 2015 at 5:12pm PDT Í Seljavallalaug. Today we made it to the wreckage of the United States Navy airplane in Sólheimasandur, crashed in 1973. I will add that all crew survived. This time I'm with @explorewithmax, you can also follow him on his own adventures at youtube.com/explorewithmax @thebudgetbackpacker @kilestumbo @notjoliebutangelina @yanga_code @caryan2 #andmatt #budgetbackpacker #sólheimasandur #iceland A photo posted by James Mason (@jamesmason19) on Sep 7, 2015 at 5:42pm PDT Á Sólheimasandi. Behind the scenes of @thebudgetbackpacker. Our DP @yanga_code and myself at the glacier lagoon in Jökulsárlón. @caryan2 @notjoliebutangelina @kilestumbo @explorewithmax #budgetbackpacker #jökulsárlón #iceland A photo posted by James Mason (@jamesmason19) on Sep 7, 2015 at 2:52am PDT Við Jökulsárlón. Despite having my phone stolen in Athens, I have made it to Iceland with everything else in tact! Hanging out the front of Hallgrímskirkja in Reykjavík with our sound recordist @kilestumbo. Bring on the adventure! @thebudgetbackpacker @caryan2 @notjoliebutangelina @yanga_code @explorewithmax @klingsmithclothingco #hallgrímksirkja #reykjavík #iceland A photo posted by James Mason (@jamesmason19) on Sep 5, 2015 at 4:33am PDT James eyddi fjórum dögum í Reykjavík.
Tengdar fréttir Hjartaknúsari úr Nágrönnum á leið til Íslands Alan Fletcher, betur þekktur sem Dr. Karl Kennedy, mun kynna Íslendinga fyrir sönghæfileikum sínum á Spot. 10. október 2014 14:31 Neighbours-leikari til landsins: „Hápunktur lífs míns að koma til Íslands“ Alan Fletcher heldur tónleika á Spot í janúar. Hann er hvað þekktastur fyrir að leika Karl Kennedy í Neighbours og ætlar að gefa sér tíma til að spjalla við aðdáendur sína þegar hann heimsækir land og þjóð. 13. nóvember 2014 08:00 Alan Fletcher hágrét þegar Karl og Susan skildu „Það var atriði þar sem hann þurfti að horfa í augun á henni og segja: „Ég elska þig ekki lengur.“ Við hágrétum í kringum þetta atriði." 9. janúar 2015 12:16 Mest lesið Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Gagnrýni Stuð í kosningavökum flokkanna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Lífið „Já, þau eru alvöru“ Lífið Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Lífið Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Lífið Shakira sýknuð Tónlist „Ætlið þið í pottinn?“ Lífið Þá var kátt í höllinni Tónlist Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Lífið Fleiri fréttir Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Fréttatía vikunnar: Jake Paul, Rúmeni og Bakgarðshlaup Oddvitaáskorunin: Ætlaði sér að verða næsti Beckham Oddvitaáskorunin: Sneri heim vegna fjölskyldunnar Oddvitaáskorunin: Dreymdi um að verða veðurfræðingur Oddvitaáskorunin: Gildran betri en Kaleo Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervigreind Oddvitaáskorunin: Ennþá svekkt með úrslit Eurovision 2010 Búið spil fimm mánuðum eftir fæðingu dótturinnar Oddvitaáskorunin: Liverpool ekki vinsælasta liðið innan flokksins Oddvitaáskorunin: „Alveg óþolandi hvað ég kann illa á klukku“ Oddvitaáskorunin: Hljóp í spreng Sveinn Andri og Vigdís keyptu ótrúlega íbúð á besta stað Oddvitaáskorunin: Grét yfir bókinni í misheppnaðri útilegu Oddvitaáskorunin: Ætlaði til Akureyrar en sneri óvart við í Borgarnesi Geltandi Britney sögð hafa ógnað gestum veitingastaðar Oddvitaáskorunin: Ron Burgundy sá fyndnasti Sjá meira
Hjartaknúsari úr Nágrönnum á leið til Íslands Alan Fletcher, betur þekktur sem Dr. Karl Kennedy, mun kynna Íslendinga fyrir sönghæfileikum sínum á Spot. 10. október 2014 14:31
Neighbours-leikari til landsins: „Hápunktur lífs míns að koma til Íslands“ Alan Fletcher heldur tónleika á Spot í janúar. Hann er hvað þekktastur fyrir að leika Karl Kennedy í Neighbours og ætlar að gefa sér tíma til að spjalla við aðdáendur sína þegar hann heimsækir land og þjóð. 13. nóvember 2014 08:00
Alan Fletcher hágrét þegar Karl og Susan skildu „Það var atriði þar sem hann þurfti að horfa í augun á henni og segja: „Ég elska þig ekki lengur.“ Við hágrétum í kringum þetta atriði." 9. janúar 2015 12:16