Föst í líkama sjötugrar ömmu Guðrún Ansnes skrifar 10. júlí 2015 10:00 Amma dídí Sjaldan er lognmolla í kringum Ömmu Dídí sem virðist föst í stuðgír. mynd/aðsend „
Þessi hressa amma varð til fyrir um þremur árum og nú er ég nánast í fullri vinnu við að vera Amma Dídí,“ segir Anna Margrét Káradóttir leikkona, sem hefur komið sér kyrfilega fyrir í karakternum Amma Dídí. Hefur umrædd Amma Dídí vakið athygli hvar sem hún kemur, en Anna Margrét hefur flutt sig sumarlangt á Rif á Snæfellsnesi þar sem hún starfar við Frystiklefann. „Hér blómstrar Amma Dídí. Hún treður upp við hin ýmsu tilefni og stendur fyrir vikulegum gönguferðum, History Walk, þar sem ferðamenn fá fræðslu um svæðið,“ útskýrir Anna Margrét og skellir upp úr þegar hún bætir við að hún hafi ekki haft hundsvit á staðháttum fyrr en hún mætti, svo oftar en ekki taki hún sér skáldaleyfi. „Það er kannski verra þegar innfæddir mæta í ferðina, þá hef ég alveg svitnað.“Anna Margrét Káradóttir leikkonamynd/aðsendAnna Margrét útskrifaðist úr leiklistarnámi frá Rose Bruford-leiklistarskólanum árið 2011, og hefur meðal annars lagt stund á nám í Texas í sömu fræðum. „Þetta byrjaði allt mjög smátt en við vinur minn, Árni Grétar, vorum fengin til að skapa dúóið Dídí og Dúa fyrir ferðamenn á vegum Pink Iceland. Þá vorum við með leiðsöguferðir í karakterunum,“ segir Anna Margrét. Aðspurð um hvaðan innblásturinn komi rekur hún upp hláturroku og segir margt líkt með Ömmu Dídí og móður sinni. „Ég hef samt ekki sagt henni frá því, en það er margt í Ömmu Dídí sem hún á. En svo gríp ég til setningar sem ég fæ lánaðar úr ýmsum áttum og mér finnst Ömmu Dídí-legar.“ Anna Magga segir Ömmu Dídí ná til flestra og segir stóran draum þeirrar síðarnefndu vissulega tengdan Spaugstofunni. „Hún er mikið fyrir yngri menn, hún Dídí," skýtur Anna Magga inn og skellihlær.
Tengdar fréttir Slegist um Eyrarrósina Tilnefningar til Eyrarrósarinnar hafa litið dagsins ljós. Listasafn Árnesinga, Sköpunarmiðstöð Stöðvarfjarðar og Frystiklefinn Rifi keppast um að hreppa hnossið í ár. 19. mars 2015 11:30 Hugsjónir skör ofar græðginni Kári Viðarsson fer nýstárlegar leiðir í að rukka inn á sýningarnar sem hann heldur. Maður má nefnilega ráða hvað maður kýs að greiða fyrir. 1. apríl 2015 00:01 Frystiklefinn á Rifi fékk Eyrarrósina Verðlaunin afhent um borð í Húna II. 4. apríl 2015 16:15 Mest lesið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Lífið Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Lífið samstarf Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Sjá meira
Slegist um Eyrarrósina Tilnefningar til Eyrarrósarinnar hafa litið dagsins ljós. Listasafn Árnesinga, Sköpunarmiðstöð Stöðvarfjarðar og Frystiklefinn Rifi keppast um að hreppa hnossið í ár. 19. mars 2015 11:30
Hugsjónir skör ofar græðginni Kári Viðarsson fer nýstárlegar leiðir í að rukka inn á sýningarnar sem hann heldur. Maður má nefnilega ráða hvað maður kýs að greiða fyrir. 1. apríl 2015 00:01