Breytingatímar framundan Steinþór Pálsson skrifar 11. febrúar 2015 07:00 Fáir trúðu því fyrir um það bil 25 árum að flestir viðskiptavinir banka myndu nánast aldrei stíga fæti inn í þá. Hvern hefði órað fyrir því að bankar litu þessa þróun jákvæðum augum. Hvoru tveggja er nú samt staðreynd. Með stöðugum framförum í tækni er hægt að sinna bankaerindum í síauknum mæli með einföldum og ódýrum hætti hvar sem er. Það skiptir máli. Einföld afgreiðsla kostar í raun yfir 200 sinnum meira í bankaútibúi en ef hún er framkvæmd rafrænt. Notkun á netbanka og farsímavef Landsbankans fer stöðugt vaxandi, enda verðlaunaðir fyrir gott viðmót og þjónustu og langflestar færslur í bankanum eru nú með rafrænum hætti. Samskipti og viðskipti fara í síauknum mæli fram í gegnum netið og á samfélagsmiðlum og bankinn mun halda áfram að þróa þjónustu á því sviði. Í framtíðinni mun starfsfólk bankans sinna dýpri ráðgjöf og virðisaukandi þjónustu í vaxandi mæli en viðskiptavinir sjá sjálfir um einfaldari mál. Heimurinn er að breytast hratt og þau fyrirtæki sem ekki taka mið af því verða einfaldlega undir og deyja. Krafan til Landsbankans er að hann sníði sér stakk eftir vexti og haldi úti nútímalegum rekstri með skilvirkum og hagkvæmum hætti sem skilar viðskiptavinum, eigendum og samfélaginu öllu ávinningi. Að þessu vinnur bankinn markvisst en það kallar á sífellda endurskoðun á starfseminni og erfiðar ákvarðanir sem sumar hverjar munu sæta gagnrýni. Til að svara kröfum tímans verður að fjárfesta í nýjum tölvukerfum, koma í veg fyrir sóun í húsnæðismálum og sennilega fækkar afgreiðslustöðum í framtíðinni. Þá er nauðsynlegt að nýta tækifæri til að draga úr kostnaði í íslenska bankakerfinu með því að bankar sameinist um kjarnakerfi og ýmsa stoðþjónustu. Á undanförnum árum hefur mikil vinna hjá Landsbankanum farið í að aðstoða viðskiptavini í fjárhagslegum erfiðleikum og leiðrétta lán. Landsbankinn gekk lengra en önnur fjármálafyrirtæki og lengra en stjórnvöld fóru fram á varðandi fjárhagslega endurskipulagningu heimilanna. Þar má nefna einfaldari og hagfelldari 110% leið, og lánsveð þar meðtalin, auk lækkun annarra skulda, þar sem hver einstaklingur gat fengið skuldir lækkaðar um 4 milljónir króna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Tugir þúsunda viðskiptavina nutu þessara úrræða Landsbankans. Þá lauk bankinn nýverið leiðréttingu á útreikningi 35.000 lána með ólögmætri gengistryggingu til viðbótar við allar fyrri leiðréttingarnar. Þegar allt er reiknað saman kemur í ljós að Landsbankinn hefur borgað rúma 11 milljörðum króna of mikið fyrir þau lán heimilanna sem hann tók yfir við stofnun. Sá halli, ef þannig má að orði komast, er vegna þess að Landsbankinn ákvað að ganga lengra í niðurfærslu skulda en lög eða samkomulag stjórnvalda við fjármálafyrirtæki gerðu kröfu um. Á móti þessu tapi sem nemur 7% af fjárhæð lánanna, kemur jákvæð virðisbreyting á lánum stærri fyrirtækja að fjárhæð um 24 milljarðar, eða um 5% af verðmæti þeirra. Landsbankinn hefur sett sér það markmið að vera traustur samherji í fjármálum. Svo það náist þarf að byggja á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini, hagkvæmum rekstri og traustri fjárhagsstöðu. Um leið verður bankinn að skila viðunandi arðsemi til lengri tíma þegar jákvæðum einskiptisliðum sleppir en þeir hafa litað hagnað bankans mikið á undanförnum árum. Höfundur er bankastjóri Landsbankans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar