Aldrei fleiri látið lífið í hryðjuverkum Samúel Karl Ólason skrifar 20. nóvember 2015 11:30 Árásin á tvíburaturnana í New York er mannskæðasta hryðjuverkaárás sem hefur verið framin. Vísir/AFP
32,685 manns létu lífið í hryðjuverkaárásum í fyrra og er það hæsta tala látinna sem mælst hefur. Árið 2013 létu 18.111 manns lífíð í árásum og er aukningin um 80 prósent. Rúmlega helmingur allra dauðsfalla áttu sér stað í einungis tveimur löndum, Írak og Nígeríu. Í skýrslunni segir að fjöldi látinna hafi nífaldast frá árinu 2000 og ein stærsta ástæða þess er talin vera innrás Bandaríkjanna í Írak árið 2003. Árið 2000 létu 3.329 manns lífið í hryðjuverkaárásum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Global Terrorism Index sem birt var á dögunum. Samkvæmt skýrslunni voru framdar árásir í 93 ríkjum en 78 prósent allra dauðsfalla áttu sér stað í einungis fimm ríkjum. Írak, Nígeríu, Afganistan, Pakistan og Sýrlandi. Þó er vert að taka fram að samkvæmt skýrslunni var framin hryðjuverkaárás hér á landi sem á að hafa ollið eignatjóni en engum dauðsföllum. Uppfært: Um er að ræða atvik þar sem reynt var að kveikja í kirkju á Akureyri. Skýrslan er unnin upp úr tölum frá START.Þó að bróðurpartur hryðjuverka eigi sér stað í tiltölulega fáum ríkjum, fjölgaði þeim ríkjum þar sem hryðjuverk voru framin og hafa þau aldrei verið fleiri. Þá var meira en tvöföldun á ríkjum þar sem fleiri en fimm hundruð létu lífið. Í fyrra voru þau ellefu, en fimm árið áður. Sem áður er Írak verst stadda landið samkvæmt skýrslunni, þar sem 9.929 létu lífið en mesta fjölgunin átti sér stað í Nígeríu. Þar létu 5.662 lífið í hryðjuverkaárásum í fyrra sem er aukning um rúm 300 prósent á milli ára. Talið er að hryðjuverkasamtökin Boko Haram, sem eru virk í Nígeríu og fleiri löndum, hafi myrt 6.644 í fyrra. Boko Haram myrtu þar með flesta á árinu.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Innlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira