Hvenær er þetta afmæli? Auður Styrkársdóttir skrifar 13. febrúar 2015 07:00 Það hefur víst ekki farið framhjá mörgum að á þessu ári er haldið upp á aldarafmæli kosningaréttar íslenskra kvenna. En er það virkilega rétt? Getur hugsast að kosningarétturinn sé bara 99 ára? Eða er hann kannski 94 ára þegar allt kemur til alls? Stórt er spurt og full ástæða til að leita svara. Ástæðan fyrir spurningunni er sú að lögin frá Alþingi, sem Kristján konungur X staðfesti með undirskrift sinni þann 19. júní 1915, tóku gildi 19. janúar 1916. Sumir telja að réttara fari á því að halda upp á aldarafmælið 19. janúar 2016 og geyma hátíðahöld til næsta árs. En hér þarf að fleiru að hyggja. Formæður okkar mörkuðu stefnu fyrir 100 árum þegar þær ákváðu að fagna staðfestingu konungs á lögunum á stærsta fjöldafundi Íslandssögunnar til þess tíma á Austurvelli. Ekki gátu þær vitað hvaða dag konungur skrifaði undir lögin, en þegar skeyti barst hingað þann 19. júní um staðfestingu hans hófust þær handa við að undirbúa hátíðahöld. Þær völdu 7. júlí vegna þess að Alþingi kom saman þann dag. Þær þökkuðu þinginu með skrautrituðu ávarpi, (sem verður til sýnis í Landsbókasafni frá 16. maí) og konungi sendu þær símskeyti. Þannig fögnuðu íslenskar konur því að vera „viðurkenndar löglegir borgarar þjóðfélagsins“, eins og Bríet Bjarnhéðinsdóttir sagði í frásögn af hátíðahöldunum í Kvennablaðinu 16. júlí 1915. Dagurinn 19. júní hafði þó strax sérstaka merkingu hjá íslenskum konum. Þann 30. apríl 1918 skrifaði Bríet í Kvennablaðið: „Hann er grundvallarlagadagur vor íslensku kvennanna, sem gerði okkur að lagalegum þjóðfélagsborgurum, með sömu skyldum og réttindum og bræður vorir hafa. Þann dag höfum vér sjálfar í fyrstu kjörið að hátíðisdegi...“ Grundvallarlagadagurinn 19. júní hefur verið sérstakur hátíðisdagur íslenskra kvenna í heila öld. Hann hefur verið kallaður „Kvennadagurinn“ og „Kvenréttindadagurinn“ í dagatölum landsmanna um margra áratuga skeið. Fyrir nokkrum árum hittist hópur kvenna til að ræða hvernig halda mætti upp á aldarafmæli kosningaréttarins. Þá var bent á að í raun yrði hann aðeins 95 ára árið 2015. Árið 1915 náði hann nefnilega aðeins til um 52% kvenna á kosningaaldri karlmanna og því var langt í frá að kosningaréttur kvenna hafi þá orðið almennur. Réttara væri að tala um aldarafmælið þann 18. maí 1920. Þá skrifaði konungur Íslands undir þá breytingu á stjórnarskránni sem nam í burtu kynferði sem eitt lykilatriða í kosningarétti þegnanna. Og jafnvel væri aldarafmælið ekki fyrr en 1. janúar 1921 þegar sú breyting öðlaðist gildi. Samkvæmt því á kosningaréttur kvenna 94 ára afmæli á þessu ári. Þá var bent á hefðina. Eigum við að kollvarpa henni fyrir reglufestu og vísa þar með fyrri hátíðahöldum kvenna á bug sem markleysu, eða í besta falli vandræðagangi? Hin langa hefð, og skrif Bríetar í Kvennablaðinu 1918, sem ég vísaði til hér ofar, sannfærðu allar um að ekki væri rétt að vera svo stíf í falsinu. Við höfum því kosið að fagna þessum áfanga, þessu fyrsta skrefi í átt til jafnréttis, eins og formæður okkar gerðu og hafa gert allar götur síðan, þótt lögin 1915 væru þessum mikla annmarka háð. Dagurinn 19. júní er grundvallarlagadagur íslenskra kvenna. Við erum ekki ein á báti með að miða afmæli kosningaréttar við samþykkt þings og/eða undirskrift konungs. Konur í Danmörku fagna aldarafmæli síns kosningaréttar þann 5. júní næstkomandi. Þann dag fyrir réttum 100 árum staðfesti Kristján konungur X lög frá danska þinginu um kosningarétt danskra kvenna með undirskrift sinni. Norskar konur fögnuðu aldarafmælinu þann 11. júní 2013, en þann dag samþykkti stórþingið lög um kosningarétt kvenna. Í Svíþjóð verða hátíðahöld 26. janúar 2021 þegar öld verður liðin frá því sænska þingið samþykkti endanlega lög um kosningarétt kvenna. Aldarafmæli kosningaréttar kvenna verður fagnað með margs konar viðburðum um allt land. Það er von afmælisnefndar að þeir verði til þess að minna fólk á að kosningaréttur er ekki og var ekki sjálfsagður. Almenningi var treyst fyrir honum hægt og bítandi. Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna hefur dregið fram söguna á vefsíðu afmælisins (http://kosningarettur100ara.is) Ég hvet hér með alla áhugasama til þess að kynna sér hana og velta fyrir sér þessum hornsteini lýðræðis í landi okkar. Nú er svo komið að mörgu ungu fólki finnst ekki taka því að nýta réttindi sín. Er það ekki áhyggjuefnið? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar