Barcelona tapaði fyrsta heimaleiknum á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2014 14:30 Vísir/Getty
Atlético Madrid getur náð þriggja stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar í fótbolta á morgun eftir að Barcelona tapaði óvænt 2-3 á móti Valencia á heimavelli í dag. Barcelona var búið að vinna alla tíu heimaleiki sína í spænsku deildinni í vetur og hafði aðeins fengið á sig sex mörk í þeim. Þetta eru því ein óvæntustu úrslitin í spænsku deildinni á leiktíðinni. Barcelona komst í 1-0 strax á 7. mínútu leiksins en Valencia-menn létu það ekki slá sig út af laginu og skoruðu þrjú mörk með fimmtán mínútna millibili í kringum hálfleikinn. Lionel Messi lagði upp mark fyrir Alexis Sánchez á 7. mínútu og jafnaði síðan metin í 2-2 með marki úr vítaspyrnu á 54. mínútu. Hinn tvítugi Paco Alcácer skoraði sigurmark Valencia á 59. mínútu en hann hafði áður lagt upp annað mark liðsins fyrir Argentínumanninn Pablo Piatti á 48. mínútu. Fyrsta mark Valenica gerði Dani Parejo rétt fyrir hálfleik. Börsungar enduðu leikinn manni færri því Jordi Alba fékk sitt annað gula spjald á 77. mínútu leiksins.Lionel Messi skoraði og lagði upp mark en það dugði ekki Barcelona.Vísir/Getty
Spænski boltinn Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport „Ég elska peninga“ Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira