Ný og fullkomin smásjá gangsett Stefán Árni Pálsson skrifar 23. apríl 2014 21:22 Sævar Ingþórsson, doktorsnemi við Háskóla Íslands, ásamt Kristínu og Illuga. mynd/aðsend
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra gangsettu formlega nýja smásjá í húsnæði Lífvísindaseturs Háskóla Íslands í Læknagarði í dag. Smásjáin mun gjörbylta rannsóknamöguleikum vísindamanna Lífvísindasetursins. Um er að ræða svokallaða confocal-smásjá af gerðinni Olympus FV1200. Confocal-smásjár býr yfir þeim eiginleikum að með leysigeislatækni er hægt að skoða staðsetningu prótína nákvæmlega í vefjum og frumum og byggja þrívíða mynd af því sem er að gerast, jafnvel í lifandi frumum. Þetta eykur rannsóknamöguleika Lífvísindaseturs til muna sem fyrr segir. Smásjáin mun nýtast fjölbreyttum rannsóknarhópum vísindamanna sem starfa saman á vettvangi Lífvísindaseturs Háskóla Íslands. Lífvísindasetrið hefur það m.a. að markmiði að samnýta tæki og aðstöðu og hvetja til samstarfs ólíkra rannsóknahópa en nú um stundir tengjast yfir 50 hópar setrinu. Þeir eru staðsettir í Læknagarði, Öskju, á Raunvísindastofnun, Landspítala - háskólasjúkrahúsi, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, í Háskólanum í Reykjavík og Landbúnaðarháskóla Íslands. Starfsfólk eru háskólakennarar, sérfræðingar og nemendur í sérhæfðu framhaldsnámi, alls um 120 manns. Kaup smásjárinnar voru fjármögnuð með styrk úr Innviðasjóði Vísinda- og tækniráðs árið 2013 ásamt myndarlegu mótframlagi frá Tækjakaupasjóði Háskóla Íslands.
Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Sjá meira