Tökum til í Hafnarfirði Ingi Tómasson skrifar 20. september 2014 07:00 Snyrtilegt umhverfi hefur mikil áhrif á líðan okkar allra og ætti góð umgengni og umhverfisvitund að vera sjálfgefinn hlutur. En svo er því miður ekki. Í Hafnarfirði hefur á liðnum árum nokkrum sinnum verið hrint af stað hreinsunarátaki og hafa þannig um 200 tonn af rusli verið hirt, einkum af lóðum fyrirtækja. Vissulega eru flestir íbúar og mörg fyrirtæki til fyrirmyndar þegar kemur að frágangi á lóðum og umgengni, en því miður eru allt of mörg fyrirtæki sem þurfa að taka sig verulega á í þeim efnum. Sama má segja um umgengni í upplandinu, náttúrunni sem okkur er svo annt um. Víða má sjá rusl í miklum mæli sem fólk losar sig við úti í náttúrunni í stað þess að nýta þjónustu Sorpu eða Gámaþjónustunnar. Nú verður ekki lengur horft framhjá slæmri umgengni á lóðum í Hafnarfirði og því samþykkti skipulags- og byggingarráð nýlega að bærinn færi í nýtt átak í hreinsun iðnaðar-, íbúða- og nýbyggingarsvæða. Og að þessu sinni verður settur meiri kraftur í verkið en áður. Hreinsunarátakið hefst 22. september og stendur yfir í tvo mánuði.Markmið átaksins …er að koma bænum í það horf að við getum labbað um án þess að sjá rusl, bílhræ eða annan ósóma á víðavangi, við fyrirtæki eða á íbúðahúsalóðum. Til þess að þetta takist þurfum við íbúar, Hafnarfjarðarbær svo og forsvarsmenn fyrirtækja að taka okkur á og bæta umhverfisvitund samfélagsins með öllum tiltækum ráðum þannig að engum komi til hugar að líta fram hjá slæmri umgengni í bænum okkar.Ávinningur …okkar sem samfélags af því að vera í fremstu röð umhverfislega séð er augljós. Mikilvægt er fyrir uppbyggingu atvinnulífs hér sem annars staðar að umhverfið sé snyrtilegt og umgengni góð. Snyrtilegt umhverfi bætir ímynd bæjarins, íbúum líður betur og bærinn verður eftirsóknarverðari valkostur fyrir rekstraraðila, fjölskyldur og einstaklinga. Hafnfirðingar, starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar og rekstraraðilar, tökum höndum saman og setjum umhverfismál í forgang. Nánar um hreinsunarátakið á www.hafnarfjordur.is Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 27.04.2024 Halldór Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Satt og logið Bryndís Schram Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík skrifar Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir skrifar Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Framtíð innri markaðarins Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Satt og logið Bryndís Schram skrifar Skoðun Alþjóðlegi leiðsöguhundadagurinn Sigþór U. Hallfreðsson skrifar Skoðun Framsókn leggst ekki í duftið Guðmundur Birkir Þorkelsson skrifar Skoðun Að dreyma um alheim góðvildar Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar þú ert báknið Gabríel Ingimarsson skrifar Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Innivist er mikilvægasti þátturinn við hönnun íbúða! Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Brautryðjandinn Baldur Þóra Björk Smith skrifar Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Árangur gegn verðbólgu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar er híbýlaauður? Anna María Bogadóttir skrifar Skoðun Áhugaverðir tímar kalla á áhugaverðan forseta Cody Alexander Skahan skrifar Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Sjá meira
Snyrtilegt umhverfi hefur mikil áhrif á líðan okkar allra og ætti góð umgengni og umhverfisvitund að vera sjálfgefinn hlutur. En svo er því miður ekki. Í Hafnarfirði hefur á liðnum árum nokkrum sinnum verið hrint af stað hreinsunarátaki og hafa þannig um 200 tonn af rusli verið hirt, einkum af lóðum fyrirtækja. Vissulega eru flestir íbúar og mörg fyrirtæki til fyrirmyndar þegar kemur að frágangi á lóðum og umgengni, en því miður eru allt of mörg fyrirtæki sem þurfa að taka sig verulega á í þeim efnum. Sama má segja um umgengni í upplandinu, náttúrunni sem okkur er svo annt um. Víða má sjá rusl í miklum mæli sem fólk losar sig við úti í náttúrunni í stað þess að nýta þjónustu Sorpu eða Gámaþjónustunnar. Nú verður ekki lengur horft framhjá slæmri umgengni á lóðum í Hafnarfirði og því samþykkti skipulags- og byggingarráð nýlega að bærinn færi í nýtt átak í hreinsun iðnaðar-, íbúða- og nýbyggingarsvæða. Og að þessu sinni verður settur meiri kraftur í verkið en áður. Hreinsunarátakið hefst 22. september og stendur yfir í tvo mánuði.Markmið átaksins …er að koma bænum í það horf að við getum labbað um án þess að sjá rusl, bílhræ eða annan ósóma á víðavangi, við fyrirtæki eða á íbúðahúsalóðum. Til þess að þetta takist þurfum við íbúar, Hafnarfjarðarbær svo og forsvarsmenn fyrirtækja að taka okkur á og bæta umhverfisvitund samfélagsins með öllum tiltækum ráðum þannig að engum komi til hugar að líta fram hjá slæmri umgengni í bænum okkar.Ávinningur …okkar sem samfélags af því að vera í fremstu röð umhverfislega séð er augljós. Mikilvægt er fyrir uppbyggingu atvinnulífs hér sem annars staðar að umhverfið sé snyrtilegt og umgengni góð. Snyrtilegt umhverfi bætir ímynd bæjarins, íbúum líður betur og bærinn verður eftirsóknarverðari valkostur fyrir rekstraraðila, fjölskyldur og einstaklinga. Hafnfirðingar, starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar og rekstraraðilar, tökum höndum saman og setjum umhverfismál í forgang. Nánar um hreinsunarátakið á www.hafnarfjordur.is
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar
Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar