Innlent

Fjölmenn kröfuganga í Reykjavík

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá kröfugönguna sem hófst um klukkan eitt í dag.
Hér má sjá kröfugönguna sem hófst um klukkan eitt í dag. Vísir/Vilhelm
Kröfuganga verkalýðsfólks hófst klukkan eitt í dag. Gengið var niður laugarveginn við undirleik Lúðrasveitar verkalýðsins. Henni til aðstoðar var lúðrasveitin Svanur.

Að sögn nokkurra viðmælenda Vísis var góð stemning í miðbænum og mikill fjöldi fólks. Einn viðmælandi sem hefur vanið komur sínar í miðbæinn á þessum degi segir fjöldann hafa verið meiri en oft áður.

Hátíðardagskrá er nú nýhafin á Ingólfstorgi og er Þórarinn Eyfjörð fundarstjóri.

Tónlist verður leikin og ræður haldnar. Að lokinni dagskránni bjóða nokkur stéttarfélög upp á kaffisamsæti.  Efling er með kaffisamsæti í Valsheimilinu, Félag Bókagerðarmanna Stórhöfða 31, 1. Hæð (Grafarvogsmeginn), Byggiðn og Fit á Grand hóteli, VM í Gullhömrum, Rafiðnarasambandið í Stórhöfða 27 (Rafiðnaðarskólinn) og VR  verður með fjölskylduhátíð í anddyri Laugardalshallar.

Á vef ASÍ má sá auglýsingar og umfjöllum um kröfugöngur í á fjórða tug bæjarfélaga víðsvegar um landið.

Á Vísindavef Háskólans er þetta sagt um 1. maí:

„Valið á þessum degi styðst við rótgróna hefð í sunnanverðri Evrópu þar sem menn tóku sér oft frí þennan dag. Í heiðnum sið var hann táknrænn fyrir endalok vetrarins og upphaf sumarsins. Í Skandinavíu var 1. maí fyrsti dagur sumars. Kirkjan helgaði 1. maí dýrlingnum Valborgu sem var ensk prinsessa, trúboði og abbadís í Þýskalandi. Svíar halda enn þann dag í dag upp á Valborgarmessu kvöldið fyrir 1. maí.

Árið 1923 var fyrst gengin kröfuganga á 1. maí á Íslandi. Dagurinn varð lögskipaður frídagur á Íslandi árið 1972 en til samanburðar má geta þess að ríkisstjórn jafnaðarmanna í Svíþjóð gerði daginn að frídegi árið 1938.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×