Fjölmenn kröfuganga í Reykjavík Kjartan Atli Kjartansson skrifar 1. maí 2014 14:18 Hér má sjá kröfugönguna sem hófst um klukkan eitt í dag. Vísir/Vilhelm
Kröfuganga verkalýðsfólks hófst klukkan eitt í dag. Gengið var niður laugarveginn við undirleik Lúðrasveitar verkalýðsins. Henni til aðstoðar var lúðrasveitin Svanur. Að sögn nokkurra viðmælenda Vísis var góð stemning í miðbænum og mikill fjöldi fólks. Einn viðmælandi sem hefur vanið komur sínar í miðbæinn á þessum degi segir fjöldann hafa verið meiri en oft áður. Hátíðardagskrá er nú nýhafin á Ingólfstorgi og er Þórarinn Eyfjörð fundarstjóri. Tónlist verður leikin og ræður haldnar. Að lokinni dagskránni bjóða nokkur stéttarfélög upp á kaffisamsæti. Efling er með kaffisamsæti í Valsheimilinu, Félag Bókagerðarmanna Stórhöfða 31, 1. Hæð (Grafarvogsmeginn), Byggiðn og Fit á Grand hóteli, VM í Gullhömrum, Rafiðnarasambandið í Stórhöfða 27 (Rafiðnaðarskólinn) og VR verður með fjölskylduhátíð í anddyri Laugardalshallar.Á vef ASÍ má sá auglýsingar og umfjöllum um kröfugöngur í á fjórða tug bæjarfélaga víðsvegar um landið.Á Vísindavef Háskólans er þetta sagt um 1. maí:„Valið á þessum degi styðst við rótgróna hefð í sunnanverðri Evrópu þar sem menn tóku sér oft frí þennan dag. Í heiðnum sið var hann táknrænn fyrir endalok vetrarins og upphaf sumarsins. Í Skandinavíu var 1. maí fyrsti dagur sumars. Kirkjan helgaði 1. maí dýrlingnum Valborgu sem var ensk prinsessa, trúboði og abbadís í Þýskalandi. Svíar halda enn þann dag í dag upp á Valborgarmessu kvöldið fyrir 1. maí.Árið 1923 var fyrst gengin kröfuganga á 1. maí á Íslandi. Dagurinn varð lögskipaður frídagur á Íslandi árið 1972 en til samanburðar má geta þess að ríkisstjórn jafnaðarmanna í Svíþjóð gerði daginn að frídegi árið 1938.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira