Hvítasti kálfur landsins boðinn upp Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 1. maí 2014 21:38
Einn hvítasti kálfur landsins er nýkomin í heiminn á bænum Læk í Flóahreppi. Kálfurinn hefur fengið nafnið Hvíti Gauti þrátt fyrir að hann sé kvíga. Nafnið er til heiðurs Gauta Gunnarssyni bónda á Læk sem lést fyrir stuttu úr krabbameini. Kvígan verður boðin upp og mun ágóðinn renna til nýstofnaðar göngudeildar sjúkrahússins á Selfossi. Á Læk er rekið myndarlegt kúabú en hvíti kálfurinn sem kom í heiminn fyrir mánuði er þar í stíunni sinni og unir hag sínum vel. Hann fær stundum að koma á fóðurganginn þar sem Gísli Gautason gefur honum mjólk úr pela. Kvígan hefur fengið nafnið Hvíti Gauti til heiðurs Gauta Gunnarssyni, bónda á Læk, sem lést síðasta haust úr krabbameini aðeins 43 ára gamall. Saman áttu þau Guðbjörg Jónsdóttir fjögur börn.Kálfurinn er mikill gleðigjafi á Læk. „Já, hann er mjög sérstakur þessi kálfur, alhvítur og það á nú ekki að vera hægt með íslenska kúakynið að það fæðist hvítir kálfar, alhvítir“, segir Guðbjörg aðspurð um lit kálfsins. En hvað verður um kálfinn ? „Það er ætlunin að bjóða hann upp á Sunnlenska sveitadeginum, sem verður á laugardaginn á Selfossi. Ágóðinn fer til Sjúkrahúss Suðurlands og það er gaman að segja frá því að á sama tíma og kálfurinn fæddist þá var ákveðið að stofna nýja deild fyrir krabbameinssjúka og gigtarsjúklinga á sjúkrahúsinu, þannig að ágóðinn munn renna í aðbúnað og umhverfi þeirra deildar,“ bætir Guðbjörg við. Eftir uppboðið á laugardaginn verður Hvíti Gauti fluttur í húsdýragarðinn í Reykjavík þar sem hann framtíðarheimili hans verður. „Já, það er ánægjulegt að húsdýragarðurinn hefur tekið vel í það að hann verði þar til sýnis en Gauti starfaði sem dýrahirðir í garðinum,“segir Guðbjörg.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira