Menningarnótt á næsta leiti Dóra Magnúsdóttir skrifar 18. ágúst 2014 07:00 Reykjavík hefur á umliðnum árum og áratugum breyst í stórskemmtilega hátíðaborg. Hér er tónlist, bókum, barnamenningu, tísku, mannréttindum, kvikmyndum, beikoni, vetri, fjölmenningu og fleiru fagnað á sérstökum hátíðum sem fylla þétt viðburðadagatal borgarinnar. Og nú stendur móðir allra hátíða fyrir dyrum, nefnilega sjálf Menningarnótt, en hún verður haldin í 19. sinn þann 23. ágúst næstkomandi. Sérstaða hátíðarinnar felst einkum í því hversu margir sjálfsprottnir viðburðir prýða borgina ásamt nokkrum stórum lykilviðburðum. Það hefur verið gaman að fylgjast með því hversu margir rekstraraðilar í miðborginni, listamenn og jafnvel heimili bjóða íbúum og gestum borgarinnar upp á fjölmarga ólíka viðburði, svo sem tónlist, myndlist, dans, gjörninga, jóga, upplestur, bíómyndir, föndur af ýmsu tagi og vísindi að ógleymdu hinu vinsæla vöfflukaffi, þeim heimilislega viðurgjörningi. Á vefsíðunni menningarnott.is má finna alla viðburði hátíðarinnar sem stendur frá kl. 11.00 til kl. 23.00. Þrátt fyrir nafnið fer Menningarnótt eingöngu fram yfir daginn og fram á kvöld og lýkur með stórfenglegum flugeldum sem að þessu sinni verður skotið upp undir tónaflóði Rásar 2. Um 400 viðburðir eru í boði, allir rækilega kynntir á vefsíðunni, en prentuð dagskrá mun einnig birtast í Fréttatímanum. Ég viðurkenni að ég hef sjaldnast búið til mína eigin dagskrá, eins og vefurinn býður upp á að sé gert með einföldum hætti, heldur hef ég valið um það bil þrjá eða fjóra viðburði sem ég vil alls ekki missa af en látið svo berast með straumnum og upplifað það sem fyrir augu ber á hverjum stað. Hitt mann og annan og upplifað stemninguna, brosin og menninguna. Þeir sem hins vegar eru skipulagðari hafa tól og tæki til að búa til skothelda sérsniðna dagskrá. Miðbænum hefur stundum verið líkt við stássstofu á stóru heimili. Þegar blásið er til veislu eru húsgögn færð til og hefðbundinni uppsetningu heimilisins breytt í eitt skipti til að veislan megi takast sem best. Þetta er einmitt það sem gerist í og út frá miðbæ Reykjavíkur þann 23. ágúst næstkomandi, bæði vegna Reykjavíkurmaraþonsins og Menningarnætur. Reykjavík býður gestum og íbúum borgarinnar að ganga í bæinn og njóta alls þess besta í menningu sem völ er á öllum að kostnaðarlausu. Þess vegna verða nokkuð víðtækar lokanir þennan dag í miðborginni; til að liðka fyrir umferð og tryggja öryggi fólks eins og hægt er. Reynt verður eftir bestu getu að tryggja aðgengi fatlaðra að miðbænum og upplýsingar um fyrirkomulag lokana hafa verið sendar íbúum. Ef fólk þarf af sérstökum ástæðum að fara inn í bæjarhluta sem verður lokað er hægt að sækja um það sérstaklega. Almenningi er bent á að hjóla eftir því sem fólk hefur tök á eða nota strætó enda eru ókeypis ferðir þennan dag. Allar upplýsingar um samgöngur og aðgengi er að finna á menningarnott.is. Mikilvægt er að við sýnum hvert öðru lipurð í umferðinni og allri umgengni og að við áttum okkur á því að það er bara ein Menningarnótt á ári og að hún er algerlega frábær. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 09.08.2025 Halldór Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson Skoðun Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity Clara Ganslandt Skoðun Baráttan um þjóðarsálina Alexandra Briem Skoðun Hver rödd skiptir máli! Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Til ritstjóra DV Ívar Halldórsson Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Sjö staðreyndir í útlendingamálum Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar Skoðun Baráttan um þjóðarsálina Alexandra Briem skrifar Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson skrifar Skoðun Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hver rödd skiptir máli! Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Sýnum þeim frelsið Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfing skiptir öllu máli í Parkinson Helga G Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hinsegin í vinnunni Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við stöndum þeim næst en fáum ekki rödd Svava Bjarnadóttir skrifar Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisstefnan og frelsið Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Sjö staðreyndir í útlendingamálum Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar fjölbreytileikinn verður ógn: Afneitun, andstaða og ótti við hið mannlega Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Einmanaleiki: Skortir þig tengsl við þig eða aðra? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Fjölbreytni í endurhæfingu skiptir máli Hólmfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Sumarfríinu aflýst Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon skrifar Skoðun Fordómar gagnvart hinsegin fólki – Reynslusaga Geir Gunnar Markússon skrifar Skoðun „Er allt í lagi?“ Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Göngum í Haag hópinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Kirkjuklukkur hringja Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Íslenska stóðhryssan og Evrópa Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvammsvirkjun – Skyldur ráðherra og réttur samfélagsins Eggert Valur Guðmundsson skrifar Skoðun Norska leiðin er fasismi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Um mýkt, menntun og von Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Höfum alla burði til þess Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar
Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Þegar fjölbreytileikinn verður ógn: Afneitun, andstaða og ótti við hið mannlega Haukur Logi Jóhannsson skrifar