Björgólfur Takefusa spilar með Fram í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. maí 2014 20:56 Björgólfur Takefusa. Vísir/Stefán
Björgólfur Takefusa hefur ákveðið að spila með Fram í Pepsi-deild karla í sumar og er búinn að gera samning við Safamýrarliðið út tímabilið en þetta staðfesti Sverrir Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Fram, við Vísi í kvöld. „Þetta gerðist mjög hratt. Hann er fínu standi og við sömdum við hann með kvöldinu og þetta er bara klárt," sagði Sverrir í samtali við Vísi í kvöld. „Hann kom á æfingu og virðist vera í góðu standi. Ég veit ekki hvernig þetta gerðist, þetta poppaði allt í einu upp og einhver atburðarrás fór í gangi. Við gengum síðan frá þessu núna," sagði Sverrir kátur með nýja liðsmanninn. Framarar hafa aðeins fengið eitt stig út úr fyrstu tveimur leikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar og Safamýrarliðið hefur einnig misst lykilmenn í meiðsli í fyrstu umferðunum. Björgólfur náði sér ekki á strik í herbúðum Vals á Hlíðarenda en hefur í mörg verið einn allra hættulegasti framherji deildarinnar og ætti að koma með mikla reynslu inn í ungt Framlið. Björgólfur er einn markahæsti leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildar karla í fótbolta en aðeins sjö leikmenn hafa skorað fleiri mörk en hann í efstu deild. Björgólfur Takefusa var síðast í herbúðum Vals en lék ekkert með Valsmönnum eftir sjö fyrstu umferðirnar í fyrra. Björgólfur heldur upp á 34 ára afmælið sitt um helgina en hann hefur skorað 83 mörk í 173 leikjum í efstu deild fyrir Þrótt, Fylki, KR, Víking og Val.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira