Innlent

Í annarlegu ástandi með bláa ruslatunnu

Jakob Bjarnar skrifar
Maðurinn mun hafa tekið bláa ruslatunnu ófrjálsri hendi og síðan ráðist á konu sem ætlaði að endurheimta tunnuna.
Maðurinn mun hafa tekið bláa ruslatunnu ófrjálsri hendi og síðan ráðist á konu sem ætlaði að endurheimta tunnuna. visir/vilhelm
Lögreglan handtók í gærkvöldi mann í mjög annarlegu ástandi við Háteigsveg og er hann grunaður um líkamsárás og ofbeldi gegn opinberum starfsmanni.

Forsaga málsins er sú samkvæmt tilkynningu frá lögreglu að maðurinn mun hafa tekið bláa ruslatunnu ófrjálsri hendi og síðan ráðist á konu sem ætlaði að endurheimta tunnuna. Óeinkennisklæddur lögreglumaður sem var þarna á ferð sá atvikið og handtók manninn. Þegar flytja átti hann á lögreglustöð náði maðurinn að slá lögreglukonu í andlitið og hlaupa burt en var handtekinn strax aftur. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og verður rætt við hann er ástand hans lagast.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×