Robson: Rooney getur orðið næsti fyrirliði Englands Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júlí 2014 09:34 Verður Rooney næsti fyrirliði enska landsliðsins? Vísir/Getty
Bryan Robson, fyrrum leikmaður Manchester United og Englands, segir í samtali við BBC Sport að Wayne Rooney geti tekið við fyrirliðabandi enska landsliðsins af Steven Gerrard sem tilkynnti í gær að hann væri búinn að leggja landsliðsskóna á hilluna. "Það er enginn augljós kostur sem fyrirliði," sagði Robson og bætti við: "Rooney hefur gegnt stöðu fyrirliða hjá Manchester United og Englandi. Hann veit um hvað málið snýst." Robson segir ennfremur að einn af eldri og reyndari leikmönnunum í enska landsliðshópnum verði fyrir valinu. "Vonandi munu einhverjir af ungu strákunum í landsliðinu stíga fram og sanna sig eftir vonbrigðin á HM, og gera sig gildandi innan leikmannahópsins. "Ég sé það samt ekki gerast. Þú verður að leita til reyndari leikmanna sem eru fastamenn í landsliðinu. "Joe Hart, Gary Cahill og Wayne Rooney koma allir til greina," sagði Robson sem bar fyrirliðabandið hjá Englandi í 65 leikjum á sínum tíma, en aðeins Bobby Moore og Billy Wright hafa gegnt stöðu fyrirliða enska landsliðsins oftar en hann. Robson segir Rooney búa yfir þeim kostum sem prýða góðan fyrirliða. "Rooney er okkar besti leikmaður. Hann gengur fram fyrir skjöldu og vinnur vel fyrir liðið. "Það breytir engu í hvaða stöðu hann spilar, Rooney leggur sig alltaf fram. "Það er einkenni á góðum fyrirliða. Ef Rooney verður fyrir valinu, þá efast ég ekki um að hann muni standa sig með sóma," sagði Robson að lokum. Rooney hefur tvisvar gegnt stöðu fyrirliða hjá enska landsliðinu; gegn Brasilíu í æfingaleik árið 2009 og þremur árum seinna í leik gegn San Marinó í undankeppni HM 2014.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gerrard leggur landsliðsskóna á hilluna Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er hættur að spila með enska landsliðinu. 21. júlí 2014 14:30 Hodgson: Gerrard var frábær fyrirliði Roy Hodgson segir að Steven Gerrard hafi verið frábær fyrirliði og fyrirmynd. 21. júlí 2014 20:00 Mest lesið Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Íslenski boltinn Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Fótbolti Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Íslenski boltinn Mike Tyson frestar bardaganum á móti Jake Paul Sport McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana Golf Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar Sport Courtois byrjar úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Rooney gæti fengið nýtt starf þrátt fyrir hræðilegan árangur síðast Sjá meira
Gerrard leggur landsliðsskóna á hilluna Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er hættur að spila með enska landsliðinu. 21. júlí 2014 14:30
Hodgson: Gerrard var frábær fyrirliði Roy Hodgson segir að Steven Gerrard hafi verið frábær fyrirliði og fyrirmynd. 21. júlí 2014 20:00