Frumhlaup verðandi landlæknis Reynir Arngrímsson skrifar 17. desember 2014 07:00 Verðandi landlæknir hljóp á sig í sinni fyrstu opinberu yfirlýsingu. Áður en hann er tekinn við embætti. Það er ekki góðs viti. Ber merki um fljótfærni og skort á fagmennsku. Apar upp fullyrðingar um 50% launakröfur lækna, sem samningamenn læknafélaganna höfðu borið til baka. Setti sig ekki inn í málið áður en hann tjáði sig. Þjóðin á öðru að venjast frá þeim sem hafa setið í embættinu. Hellti sér í pólitískan hráskinnaleik sitjandi á erlendri grundu. Skyldi þetta vera hin nýja lína stjórnvalda? Að heilbrigðisstéttir skuli leita samþykkis landlæknis áður en þær fara fram með kröfur á hendur ríkinu í kjarabaráttu sinni? Munu sjúkraliðar, sálfræðingar, félagsráðgjafar og hjúkrunarfræðingar sætta sig við slíkt? Maðurinn virðist að þessu leyti ekki skilja hlutverk embættisins sem hann er að taka við. Nú er erfitt að fá lækna til að koma til starfa á Íslandi vegna launakjara og læknaskortur þegar orðinn vandamál á nokkrum sviðum. Það virðist líka gilda um landlæknisembættið. Við tekur læknir sem er hættur að vinna í Svíþjóð vegna aldurs. Kannski verður það viðmiðið í framtíðinni. Að íslenskir læknar fáist til að koma til starfa á Íslandi þegar þeir verða 67 ára. Hafa eftirlaunastuðning erlendis frá. Er virkilega svona komið fyrir íslensku heilbrigðiskerfi?Á móti straumnum Verðandi landlæknir syndir á móti straumnum. Flyst heim þegar straumurinn er út. Við vildum að yngri læknar fylgdu fordæmi hans. Hann á e.t.v eftir að átta sig á því hvers vegna svo er ekki. En út á það gengur barátta lækna fyrir leiðréttingu á grunnlaunum sínum til samræmis við almenna launaþróun í landinu og sérstaklega aðrar heilbrigðistéttir. Verðandi landlæknir getur líklega upplýst stjórnvöld um hvaða laun bjóðast íslenskum læknum sem vilja starfa í Skandinavíu fyrst hann er í þessum ham. Unglæknum með lækningaleyfi sem fara til framhaldsnáms í Svíþjóð bjóðast a.m.k. 38 þúsund sænskar krónur í dagvinnulaun á fyrsta ári. Það gera um 620 þúsund íslenskar krónur á mánuði á fyrsta ári í framhaldsnámi miðað við gengi í dag. Á Íslandi geta 55 ára og eldri sérfræðilæknar með áralanga starfsreynslu og þjálfun vænst þess að fá slík grunnlaun skv. kjarasamningi Læknafélags Íslands, ef þeir halda áfram að taka vaktir fram í rauðan dauðann á við sér yngri menn. Afsala sér réttindum til vaktahvíldar. Byrjunarlaun sérfræðinga á Íslandi eru 530 þúsund eða um 100 þúsund krónum lægri en þegar framhaldsnám hefst erlendis. Í Svíþjóð voru meðallaun sérfræðilækna á sjúkrahúsum árið 2012 um 1.100 þúsund á mánuði fyrir dagvinnu. Svo bætast vaktagreiðslur ofan á fyrir nætur- og helgarvaktir. Svipað er að segja frá Noregi þar sem kjör eru heldur betri. Fín frí þar að auki í boði. Eflaust gildir sama um flestar aðrar starfstéttir. Að þær hefðu það betra í erlendu starfsumhverfi.Raunverulegt umboð Hins vegar búa læknar við það að þeir hafa þegar flutt utan til framhaldsnáms og sjá hvaða kjör útlærðum sérfræðingum bjóðast þar. Þeir vilja ekki koma heim. Það er staðreynd sem verður ekki horft fram hjá. Það er vandamálið sem þarf að finna lausn á, ef veita á viðunandi læknisþjónustu í landinu. Það gerist ekki með óbreyttu ástandi og þriggja prósenta launahækkun. Þar þarf að lyfta grettistaki. Er eitthvað annað til ráða fyrir utan að fá ellilífeyrisþega sænska ríkisins í stöðurnar til skamms tíma í senn? Lögmálið um framboð og eftirspurn virðist vefjast fyrir talsmönnum frelsis í viðskiptum og samningafrelsis á vinnumarkaði þegar kemur að læknum og fjölskyldum þeirra. Fjármálaráðherra hefur lausnina í hendi sér. Hann verður að veita samninganefnd sinni raunverulegt umboð. Vonandi reynist nýr landlæknir honum ráðagóður þegar hann hann hefur sett sig inn í málin og skilur alvöruþunga og samstöðu lækna til að bæta heilbrigðiskerfið nú en ekki síðar. Hann verður vonandi ekki dragbítur á þá endurreisn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun