Um skammtímaleigu og gistináttaskatt Pétur Sigurðsson skrifar 2. október 2014 07:00 Ég hef fylgst með umræðunni um útleigu fasteigna í skammtímaleigu til ferðamanna. Þessi nýtingarmöguleiki eigna virðist hafi komið öllum í stjórnkerfinu í opna skjöldu. Að skammtímaleiga skuli vera sjö dagar eða minna og að langtímaleiga skuli vera 8+, hljómar eins og fimm aura brandari. Að það skuli þurfa allt að 16 eftirlitsmenn til þess að skoða og samþykkja húsnæði til skammtímaleigu er sorgleg staðreynd. Það einkennir umræðuna að hagsmunahópar reyna sífellt að skara eld að sinni köku og móta stefnuna fyrir ráðamenn án þess að skeyta nokkru um hvaða afleiðingar þetta getur haft á framtíð ferðamennsku á Íslandi. Eign sem er leigð til skammtímaleigu ætti að vera á svæði sem er skipulagt sem slíkt, því þannig getur sá sem kaupir eða leigir á því svæði vitað að hann geti átt von á fólki sem er að koma og fara á öllum tímum sólahringsins. Hins vegar tíðkast ekki á Íslandi að hverfi séu skipulögð sem skammtímaleiguhverfi og þyrfti að huga að því. Ég vænti þess að flest hús á Íslandi hafi verið byggð með heimild viðkomandi sveitarfélags og þá í samræmi við byggingareglugerð. Tekið er tillit til, samkvæmt byggingareglugerð, aðgengis, hugað að neyðarútgöngum, raflögnum, pípulögnum, stigum og svo framvegis. Þess vegna skil ég ekki hvers vegna það Þarf hóp eftirlitsmanna til þess að taka út eign sem nota á í skammtímaleigu. Er ekki nægjanlegt að það komi einn maður til þess að kanna það hvort ólöglegar breytingar hafi verið gerðar á eigninni og hvort til staðar sé neyðarbúnaður. Ásamt því að gæta að því að eignin sé mannsæmandi bústaður.Út í hött Skoðum aðeins muninn á skammtímaleigu og langtímaleigu. Langtímaleiga er að mínu mati leigutími þar sem leigjandinn tilkynnir sitt lögheimili og tilkynnir póstinum heimilisfang. Skammtímaleiga er tímabundin eða árstíðabundin leiga vegna vinnu, skemmtunar eða annarrar tímabundinnar notkunar. Að halda því fram að 8+ dagar séu langtímaleiga er alveg út í hött, nær væri að segja að langtímaleiga sé 6+ mánuðir. Það hefur farið fram mikil umræða um Náttúrupassann, hvernig hægt sé að innheimta það fé og hvernig hægt sé að úthluta því. Þetta er mjög einfalt mál og hefur víða tekist vel. Það eina sem þarf að gera er að innheimta gistináttaskatt af allri skammtímaleigu, sama í hvaða formi hún er. Hvort sem er á hóteli eða tjaldsvæði. Gjaldið gæti verið milli 4% til 8% eftir því sem löggjafanum finnst hæfilegt. Innheimta má gjaldið með svipuðum hætti og virðisaukaskatt af öllum aðilum í ferðaþjónustu sem leigja út gistingu skemur en sex mánuði. Það þyrfti einnig að setja það í lög um þennan skatt að það megi ekki nota hann til neins annars heldur en að bæta aðstöðu ferðamanna. Það ætti taka um þrjú ár að koma öllum helstu ferðamannastöðum landsins í lag. Þessi skattur kæmi til viðbótar þeim 7% virðisaukaskatti sem innheimtur er í dag. Ferðamenn eru vanir gistináttaskatti og reikna með að þurfa að greiða hann. Þegar búið er að lagfæra ferðamannastaðina má búast við fjölgun ferðamanna í landinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað ég fór smám saman að skilja um Sjálfstæðisflokkinn Valerio Gargiulo Skoðun Langhundur Kristins Hrafnssonar ritrýndur Páll Steingrímsson Skoðun Ísland 2.0 Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Gaslýsingar ráðherra Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Hvernig samfélag má bjóða þér? Ingileif Friðriksdóttir Skoðun Mikil og ör fjölgun í hópi ökukennara ár eftir ár. Hver er ávinningurinn? Þuríður B. Ægisdóttir Skoðun Nú er ábyrgðin þín kæri sveitarstjórnarmaður Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir Skoðun Grænlendingar veiða þorsk frá Íslandi Finnbogi Vikar Guðmundsson Skoðun Alþjóðasamstarf er Íslendingum lífsnauðsynlegt Haraldur Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Höfum við kjark til að gefa fólki tækifæri? Jónas Ingi Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Svindl er ekki stóra spurningin Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Samræmd próf: Fyrir hvern? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Frábær fjöl eða fúin? Svava Pétursdóttir skrifar Skoðun Höfrungahlaup Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Jafnréttislög í 50 ár Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Ísland 2.0 Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Fjölbreytt skólastarf í litlum skóla Guðmundur FInnbogason skrifar Skoðun Ör í borgarmyndinni: Hvers konar borg vill Reykjavík vera? Ásta Olga Magnúsdóttir,Egill Sæbjörnsson,Páll Jakob Líndal,Rafael Campos de Pinho skrifar Skoðun Gaslýsingar ráðherra Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Langhundur Kristins Hrafnssonar ritrýndur Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvað ég fór smám saman að skilja um Sjálfstæðisflokkinn Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikil og ör fjölgun í hópi ökukennara ár eftir ár. Hver er ávinningurinn? Þuríður B. Ægisdóttir skrifar Skoðun Atvinnuvegaráðherra taki fram fyrir hendur Hafró Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf er Íslendingum lífsnauðsynlegt Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig samfélag má bjóða þér? Ingileif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Nú er ábyrgðin þín kæri sveitarstjórnarmaður Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Í ljósi sögunnar - Hugleiðing eftir kosningar Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Um sveitarstjórnarkosningar, siðferðilega dofnun og brothætt eðli réttinda Inga Henriksen skrifar Skoðun Samfélagið eftir kosningar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar Skoðun Grænlendingar veiða þorsk frá Íslandi Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Loftslagsbreytingar: tölum um lausnir Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fagmennska, frumkvæði og frelsi lækna Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Mikil og ör fjölgun í hópi ökukennara ár eftir ár. Hver er ávinningurinn? Þuríður B. Ægisdóttir Skoðun
Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir Skoðun
Skoðun Ör í borgarmyndinni: Hvers konar borg vill Reykjavík vera? Ásta Olga Magnúsdóttir,Egill Sæbjörnsson,Páll Jakob Líndal,Rafael Campos de Pinho skrifar
Skoðun Mikil og ör fjölgun í hópi ökukennara ár eftir ár. Hver er ávinningurinn? Þuríður B. Ægisdóttir skrifar
Skoðun Um sveitarstjórnarkosningar, siðferðilega dofnun og brothætt eðli réttinda Inga Henriksen skrifar
Skoðun Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar
Mikil og ör fjölgun í hópi ökukennara ár eftir ár. Hver er ávinningurinn? Þuríður B. Ægisdóttir Skoðun
Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir Skoðun