Menning

Sniffer er þjáningarbróðir Ólivers Twist

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Sniffer er karakter sem við Erica erum búnar að þróa nokkuð lengi,“ segir Sigga Björg.
"Sniffer er karakter sem við Erica erum búnar að þróa nokkuð lengi,“ segir Sigga Björg. Fréttablaðið/Arnþór
Ný sýning verður opnuð í Listasafni ASÍ á morgun, laugardag, klukkan 15.

Um er að ræða innsetningu, margradda frásögn af Sniffer. En hver er hann? Sigga Björg er í safninu og verður fyrir svörum því Erica er ekki komin til landsins þegar ég hef samband.

„Sniffer er karakter sem við Erica erum búnar að þróa nokkuð lengi.

Við gerðum bók með textum um hann. Þar getur fólk fengið að skyggnast inn í hið aumkunarverða líf þessarar persónu sem er unninn með skírskotunum í Óliver Tvist.

Svo eru líka teikningar, skúlptúrar og vídeóverk. Allt safnið snýst um Sniffer,“ segir hún og tekur því vel að deila aðeins meiri upplýsingum um persónuna.

„Sniffer er lánlaus karakter, þjáningarbróðir Ólivers Twist. Var ungur yfirgefinn af foreldrum sínum og eyddi æskuárunum einsamall á götunni í stefnulausri leit að næringu og ást. Hann er klofinn persónuleiki og það veldur honum ómældum erfiðleikum þegar hann reynir að finna sinn stað í tilverunni.“



Erica býr í Skotlandi og Sigga Björg líka að hluta til. Þær unnu þessa sýningu alla í Glasgow, bæði saman og hvor í sínu lagi að sögn Siggu og voru með hana á sýningu sem nefnist Glasgow International fyrr á árinu.

Sýningin í Listasafni ASÍ er opin alla daga nema mánudaga frá klukkan 13 til 17 og aðgangur er ókeypis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×