Miklu minna skorað á gervigrasi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. maí 2014 07:00 Arnþór Ari Atlason og félagar í Fram hafa spilað alla þrjá leiki sína í Pepsi-deildinni í sumar á gervigrasinu í Laugardal. Fréttablaðið/stefán
Þrjár umferðir eru að baki í Pepsi-deild karla og helmingur leikjanna átján hefur farið fram á gervigrasvöllum. Þetta er vissulega mjög óvenjulegt ástand og skemmtanagildið er ekki eins mikið ef marka má tölfræðina. Það er nefnilega athyglisvert að mun færri mörk eru skoruð í gervigrasleikjunum en í þeim leikjum sem hafa verið spilaðir á náttúrulegu grasi. Leikmenn hafa skorað 26 mörk í níu grasleikjum, eða 2,9 að meðaltali í leik, en mörkin hafa aðeins verið 15 í gervigrasleikjunum níu, sem gerir bara 1,7 mörk að meðaltali. Þarna munar ellefu mörkum í jafnmörgum leikjum og þar með meira en einu marki að meðaltali í leik. Í fimm leikjum hefur verið skorað undir tveimur mörkum og þeir hafa allir farið fram á gervigrasi, þar á meðal eina markalausa jafnteflið til þessa í sumar. Þriðja umferðin var ekki að hjálpa gervigrasinu í þessari tölfræðiúttekt enda voru aðeins skoruð samtals tvö mörk í þremur gervigrasleikjum í gær og annað þeirra kom úr vítaspyrnu. Það voru skoruð fimmtán færri mörk í fyrstu þremur umferðunum í ár en í fyrra og leikmenn deildarinnar eru búnir að setja nýtt met í markaleysi í fyrstu þremur umferðunum í tólf liða deild. Það hafa öll lið nema eitt spilað á gervigrasi í þessum þremur fyrstu umferðunum en aðeins nýliðar Fjölnis hafa fengið alla leiki á grasi. KR og Fram hafa á móti spilað alla þrjá leiki sína á gervigrasi, þar af Framliðið alla leikina á gervigrasinu í Laugardal. Eins og staðan er núna fer enginn leikur fram á grasi í næstu umferð um næstu helgi en það gæti breyst snögglega eins og í aðdraganda síðustu umferða í Pepsi-deildinni.Gras 9 leikir, 810 mínútur 26 mörk (2,89 í leik)Mark á 31 mínútu frestiGervigras 9 leikir, 810 mínútur 15 mörk (1,67 í leik)Mark á 54 mínútna fresti
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira