Segir refum ekki fjölga við veiði Bjarki Ármannsson skrifar 2. maí 2014 08:30 Snorri segir refastofninn allt of stóran. Mynd/Aðsend
Það er allt of mikil einföldun að halda því fram að sífellt batnandi viðkoma refastofnsins sé vegna aukinnar veiði. Þetta segir Snorri H. Jóhannesson, bóndi á Augastöðum í Borgarfirði og formaður Félags atvinnuveiðimanna á ref og mink. Hann gefur lítið fyrir ummæli Esterar Rutar Unnsteinsdóttur, spendýravistfræðings hjá Náttúrufræðistofnun, um að veiðimenn sem setji út fæði til að lokka til sín dýrin haldi lífi í tófum sem annars hefðu soltið í hel um veturinn. „Að refur verði hungurdauða, það er eitthvað alveg nýtt fyrir mér,“ segir Snorri. Hann segir fátt geta grandað refum annað en elli og veiðar. „Ég er sammála henni með það að það er alltof algengt að menn bera út fæði og sinna því ekki. En refum fjölgar til dæmis á Hornströndum en það er ekkert fæði borið út þar.“ Refastofninn á Íslandi hefur verið á uppleið frá því um 1970 og tók sérstakan kipp upp úr 1997. Hann er nú talinn vera á bilinu tíu til þrettán þúsund dýr. Snorri segir stofninn vera allt of stóran en er ósammála því að aukin refaveiði verði til þess að refum fjölgi. „Að þeir sem veiða tugi refa á árinu stuðli að fjölgun, það eru öfugmæli í mínum huga.“En hver skyldi ástæðan þá vera? „Maður hefur heyrt að þetta sé vegna þess að heiðagæs og fýl hafi fjölgað, að það hafi hlýnað í veðri eða þá að stofninn taki svona tíu ára sveiflur eins og rjúpnastofninn. Ég tel að þetta sé vegna þess að það var slakað á klónni við að framfylgja lögum og reglum. Það þarf að vera meira kontról.“ Hann bætir því við að sú hugmynd sé uppi að hætta eigi refaveiðum í tilraunaskyni og athuga hverjar afleiðingarnar yrðu. „Það er tilraun sem ég er ekki tilbúinn að taka þátt í,“ segir Snorri.
Tengdar fréttir Aukin veiði fjölgar refum Veiðimenn sem setja út fæði til að lokka til sín tófur gætu hafa orðið þess valdandi að viðkoma stofnsins er sífellt að batna. Fæðið verður til þess að tófur sem hefðu ella drepist nái að lifa af veturinn segir sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun. 1. maí 2014 07:35 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira
Aukin veiði fjölgar refum Veiðimenn sem setja út fæði til að lokka til sín tófur gætu hafa orðið þess valdandi að viðkoma stofnsins er sífellt að batna. Fæðið verður til þess að tófur sem hefðu ella drepist nái að lifa af veturinn segir sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun. 1. maí 2014 07:35